Skelfing er að horfa upp á þetta

Margir erlendir málsmetandi menn, þar á meðal bandaríski sérfræðingur okkar í samninganefndinni, segja að mjög mikilvægt sé að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram. Með afgerandi "Nei" niðurstöðu, verði samningsstaða okkar betri í framhaldinu, að hún sendi skýr skilaboð, ekki bara til Breta og Hollendinga, heldur heimsbyggðarinnar allrar, um að framferði af þessu tagi muni almenningur ekki líða.

En Jóhanna og Steingrímur eru við sama heygarðshornið. Þau eru sterkustu bandamenn viðsemjenda okkar í málinu.

Pælið í því!


mbl.is Kann að frestast um viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gunnar vor góður !

 Ertu hissa á Jóhönnu & Steingrími ?

 Þau eru bæði sem strúturinn.  Stinga höfðum í sandinn.

 Að engin RÍKISÁBYRGÐ sé á Icesave - kemur þeim hreint ekkert við !!

 Að þú eigir að borga gjaldþrot einkafyrirtækis mannsins í næsta húsi  ??  Kemur þeim ei heldur nokkuð við !

 Þau eru þrælar þráhyggjunnar.Þjónar nýlenduveldanna.

 Laxnes lét Arnes í " Eldur í Kaupenhafn" segja.:

 " Feitur þjónn er ekki mikill maður. Barinn þræll er mikill maður því í hans brjósti a FRELSIÐ HEIMA."

 Allir eitt á laugardag.

 Kröftugt N E I  !

Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 2.3.2010 kl. 17:51

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þvílíkur hringlandaháttur í þess liði og þessu drullupakki er treyst til að fara með stjórnartaumana í þessu landi.

Jóhann Elíasson, 2.3.2010 kl. 20:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband