Myndir af rútunni

Rútan sem lenti í árekstrinum var frá Austfjarðaleið , með farþega frá álverinu í Reyðarfirði. Sem betur fer voru meiðsli ekki alvarleg en höggið við áreksturinn var gríðarlegt og björguðu bílbeltin því sem bjargað varð.

008

010

Rútan er talin ónýt, vélin í henglum og grindin rammskökk.

011

Rútan er um ársgömul og þeim hjá Austfjarðaleið leist illa á stólana í henni þegar þeir fengu hana og ákváðu að skipta um öll sæti og setja önnur í staðinn. Á myndinni eru gömlu sætin úr rútunni en festingarnar í gólfið voru ómerkilegar og veigalitlar.

012

Festingar fyrir öryggisbelti voru á einum litlum bolta í gatinu sem sést á myndinni.

Eftir áreksturinn höfðu nýju sætin skekkst mikið fram við höggið. Auðvelt er að ímynda sér hvernig hefði farið ef gömlu sætin hefðu verið í rútunni. Hugsanlega værum við að tala um banaslys ef svo hefði verið. Þessi búnaður á sætum rútunnar fékk grænt ljós hjá bifreiðaeftirliti.

Samkvæmt vitnum að árekstrinum var stórum, breyttum jeppa, ekið fram úr snjóruðningstæki, í gegnum þykkt snjókóf, svo útsýni til framúrakstur var ekkert. Bílarnir skullu saman af fullu afli við hliðina á snjóruðningstækinu. Ökuritinn í rútunni sýndi að hraði hennar var 74 km. á klukkustund.


mbl.is Níu fluttir á sjúkrahús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þetta er ljótt að sjá. Enn eitt slysið sem verður vegna þess að akstri er ekki hagað eftir aðstæðum.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 22.2.2010 kl. 18:24

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, alveg skelfilegt

Það er einnig umhugsunarvert að gömlu sætin þóttu góð og gild af eftirlitsaðilum. Ef ekki hefði verið fyrir framsýni rútufyrirtækisins, værum við e.t.v. að tala um enn meiri hörmung

Gunnar Th. Gunnarsson, 22.2.2010 kl. 20:03

3 Smámynd: Steingrímur Helgason

Hlífar er einn vel vandaður gutti enda...

Steingrímur Helgason, 23.2.2010 kl. 00:37

4 Smámynd: Hörður Halldórsson

Man fyrir nokkrum árum vann ég við Vatnfellsvirkjun og var farið uppeftir á mánudagsmorgnum,en það voru engin almennileg öryggisbelti í rútunni .Var ég hálfsmeykur ,verð að viðurkenna það.En þegar uppeftir vr komið var ströng hjálmaskylda allstaðar og var maður áminntur ef maður tók hjálminn niður.jafnvel þó maður væri að vinna  á öruggum stað.Reglur verða að gilda þannig að maður varð að virða hjálmskylduna.Hefði  samtfundist beltin ca 10 sinnum mikilvægari.

Hörður Halldórsson, 24.2.2010 kl. 08:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband