Matreidd skoðun fyrir stjórnarþingmenn

árniþEr það ekki dæmigert af kommúnista að gagnrýna félaga sinn fyrir að hugsa sjálfstætt?

Í huga Árna Þórs Sigurðssonar, lagði þingmannanefndin línurnar og stjórnarþingmenn áttu að hafa skoðun á málinu í samræmi við niðurstöðu meirihluta nefndarinnar. Öll frávik frá þeirri skoðun að tilteknir ráðherrar í fyrrverandi ríkisstjórnum séu glæpamenn, kemur þessum þingmanni VG á óvart.

Þingmannanefndin átti að vera hjálpargagn til að meta stöðuna. Niðurstaða nefndarinnar voru hvorki dómsorð né lög, eins og Árni Þór virðist halda.


mbl.is Vantraust á störf þingmannanefndar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er þá ekki vegna fáfræði....?

muslim-tshit"Gunnhildur Lilý segir Svíþjóðardemókrata einkum sækja fylgi sitt til borga og bæja þar sem hlutfall innflytjenda er hátt í Svíþjóð."

Og fylgið er þá væntanlega lítið í borgum og bæjum þar sem lítið er um innflytjendur. FootinMouth 

Það gæti verið ákveðin vísbending Errm

Þar sem kjósendur hafa eigin reynslu af innflytjendum (hér er aðallega átt við múslima), hafa þeir tilhneigingu til að kjósa Svíþjóðardemókrata. Þar sem reynslan er lítil sem engin, þar er áhuginn minni.

Ég kynntis nokkrum Englendingum og Þjóðverjum meðan á byggingu álversins hér á Reyðarfirði stóð. Þeir dásömuðu einfaldleika og hreinleika samfélagsins á Íslandi.

Einsleitnina töldu þeir mikinn kost. Þeir voru ekki að tala um einsleitan hörundslit á fólki eða einsleita matargerð, heldur einsleitt samfélag þar sem fólk hefur sömu réttindi og ber sömu skyldur og hefur ríka samfélagslega ábyrgð. Margir af þessum mönnum sögðust óska okkur Íslendingum þess að við gerðum ekki sömu mistök varðandi innflytjendur og gerð voru í heimalandi þeirra.

Hvað er til ráða?


mbl.is Nýnasistar á nýjum klæðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úr fána yfir í smokk

Íslenska ríkisstjórnin tilkynnti í dag að hún hyggst breyta tákni landsins úr fána yfir í smokk, þar sem að hann lýsir betur pólitískri stöðu þjóðfélagsins. Smokkurinn leyfir þenslu, hindrar framþróun, eyðileggur næstu kynslóð, verndar fjölda asnaprika....og gefur þér .........öryggistilfinningu þrátt fyrir að verið sé að taka þig í rassgatið


mbl.is Steingrímur: Íslendingar munu borga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ungt og efnilegt lið féll

Lið Fjarðabyggðar er skipað ungum og óreyndum strákum að mestu, en bráð efnilegum.

Ég kvíði ekki næstu árum ef vel verður haldið utan um þann mannskap og efnivið sem við höfum. Liðið fer strax upp að nýju ef svo verður.

Áfram Fjarðabyggð!


mbl.is Þór í úrvalsdeild - Fjarðabyggð féll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær er sú hugmynd, kommúnistum fjarri?

Það er ömurlegt að verða vitni að því, daga eftir dag, viku eftir viku, hvernig "föðurlandsvinirnir" í V-grænum, (og fáeinir úr Samfylkingunni) gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tefja framkvæmdirnar í Helguvík. Sömu aðferðum munu þessir stjórnmálamenn beita af fullum þunga, um leið og einhver frekari skriður kemst á málin á Bakka við Húsavík.

Þegar þessi afturhaldsöfl hafa lokið sér af, mun orðspor Íslands sem viðskiptalands hafa beðið slíka hnekki, að mörg ár mun taka að vinna traustið til baka. En það mun auðvitað ekki gerast nema kjósendur víki þessum stjórnmálamönnum frá í næstu kosningum.

Ég held að bókstafur laganna sé andanum æðri. Það yrði óásættanleg áhætta fyrir ríkið að fara í málaferli vegna riftunar samninga. En svo kom rúsínan í pylsuendanum hjá Steingrími, en það var auðvitað eignarnámsleiðin.

Hvenær er sú hugmynd kommúnistum fjarri? Errm


mbl.is Lögmæti Magmasölu túlkunaratriði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli þeir fatti djókið?

jgnarr"Diplómasía".... siðir og venjur. Ég er íhaldssamari með aldrinum hvað þetta varðar. Bréf Jóns Gnarr er ekkert "diplómatískt", heldur miklu fremur ögrandi og mjög hvasst.

Borgarstjóri Reykjavíkur "krefst" þess að kínverska Alþýðulýðveldið fari "skilyrðislaust" að óskum sínum. Errm

Ætli þeir fatti djókið, í landinu þar sem keisarans hallir skína? 


mbl.is Mótmælabréf Jóns Gnarr til Kínverja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn grunaður

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum liggur "Reðursafnið" á Húsavík, sterklega undir grun um að hafa reynt að koma á þessum viðskiptum Cool
mbl.is Reyndu að selja kynfæri af karlmanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svipuð aðferð?

slátrunEf það er rétt sem mér hefur oft verið sagt, að sláturaðferð múslima sé hnífsegg á barka, (eins og þeir gera við suma gísla sem lenda í höndunum á þeim)  þá er það í mínum huga ekkert svipuð aðferð og hnakkaskot.

Hvora aðferðina myndir þú velja fyrir sjálfan þig?


mbl.is Fé slátrað að hætti múslima
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varð aldrei samur eftir Fischer

 Hér er lausleg þýðing mín úr fréttabréfi  "The Internet Chess Club" sem ég er áskrifandi að:

blarsen

Einn sterkasti stórmeistari síns tíma, danska goðsögnin Bent Larsen, andaðist í Buenos Aires, Argentínu, eftir stutt veikindi. Hann var 75 ára gamall.

Hinn sexfaldi danski meistari komst fjórum sinnum í áskorendaeinvígi um heimsmeistaratitilinn (1965, 1968, 1971 og 1977). Hann vann þrjú svæðamót sem voru undankeppnir fyrir áskorendaeinvígi og ótal mörg alþjóðleg stórmót. Larsen vann 5 stórmót í röð; Havana 1967, Winnipeg 1967, Palma de Mallorca 1967, Sousse 1967 og Monte Carlo 1968. Engum skákmanni í heiminum, sem ekki er ríkjandi heimsmeistari hefur auðnast slíkur árangur. Árið 1967 fékk hann "Chess Oscar", eða "Skák Óskarinn", þegar hann var veittur í fyrsta sinn.

Larsen var fyrsti vestræni skákmeistarinn sem eitthvað hafði í sovésku skákvélina að gera, eftir seinni heimsstyrjöldina. Á árunum fram að "Bobby Fischer 1972", var Larsen álitinn líklegri kandidat en Fischer sem næsti heimsmeistari í skák. Enda mótmælti Larsen því að vera settur á 2. borð og Fischer á 1. borð, þegar FIDE skipulagði skákmót þar sem sterkustu skákmenn Sovétríkjanna öttu kappi við heimsúrvalið árið 1970. Mótmæli Larsens báru árangur og Fischer var færður niður um borð fyrir Larsen. Í sjaldgæfri auðmýkt lét Fischer sér þetta lynda og gaf Larsen eftir tækifæri til að tefla við ríkjandi heimsmeistara, Boris Spassky.

Það má þó e.t.v. segja að þrátt fyrir frábæran feril Larsens sem skákmanns, með mörgum sigrum og dýrðardögum, beri 6-0 ósigur hans gegn Fischer í áskorandaeinvíginu 1971, hæst og verði minnst lengst í skáksögunni.

Larsen varð fyrir miklu sálfræðilegu höggi við þá útreið sem hann fékk í einvíginu við Fischer og margir segja að ósigurinn hafi markað upphafið á því að hann missti metnaðinn og áhugan til að reyna að verða heimsmeistari.... og reyndar heyrðist oft sagt að Larsen hafi aldrei orðið sami skákmaðurinn á ný, eftir þessi viðskipti sín við Fischer.

Larsen hefur búið í Argentínu frá því laust eftir 1960, með þarlendri eiginkonu sinni. Ein af mörgum arfleifðum Larsens til skáklistarinnar er hið frábæra safn 50 skáka sem hann gaf út í bók sinni: "Larsen´s Selected Games of Chess 1948-69". (Bókin er einnig þekkt undir nafninu "Larsen: Master of Counter-Attack") - svo sannarlega frábær bók og ómissandi í hvert bókasafn.


Magnað samband

Bent Larsen er tengdur íslenskri skáksögu órjúfanlegum böndum. Merkilegt hvað kappleikir þeirra Friðriks höfðu mögnuð áhrif á þjóðina.... Og þó ekki Errm

Ef við ættum í dag kornungan stórmeistara á fljúgandi uppleið, sem væri að fara tefla einvígi við Magnus Carlsen í Laugardalshöll, þá er ég hræddur um að gríðarleg stemning myndaðist í þjóðfélaginu. Ekki síst við þær aðstæður sem uppi eru eftir þær hremmingar sem dunið hafa á okkur undanfarin misseri.

larsen

Myndir af heimasíðu Skáksambands Íslands


mbl.is Eftirsjá að gömlum félaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband