Presturinn og vegvísirinn

Hvað er líkt með presti og vegvísi?

Báðir vísa veginn en fara hann ekki sjálfir LoL

Þessi kaþólski pólski prestur er kannski undantekningin en ég hef lengi haldið að kynlíf kaþólskra presta væri "taboo", svona svipað og "Kók fyrir komma er eins og píka fyrir homma" Joyful

haha


mbl.is Prestur gefur út kynlífshandbók
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stakir jakar

Frábær frammistaða hjá Jóhönnu og keppnin í heild var bara ágæt í ár.

Stakir jakar héldu tónleika á Reyðarfirði í dag og ég skellti mér. En hverjir eru Stakir jakar? Jú, þetta er 8 karlar, tvöfaldur kvartett úr karlakórnum Jökli frá Hornafirði. Virklilega gaman að hlusta á þá og söngskráin var mjög skemmtileg hjá þeim. Í lokin voru þeir klappaðir upp af allt of fáum áheyrendum en vorin eru e.t.v. ekki besti tíminn til tónleikahalds og allra síst á björtum og hlýjum maí degi.


mbl.is Ísland í 2. sæti í Moskvu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Harmleikur

kross Orð mega sín lítils í sorginni þegar kornungt og efnilegt fólk lætur líf sitt. Dóttir mín varð harmi slegin þegar ég sagði henni frá slysinu en ungi maðurinn og hún voru skólafélagar og góðir kunningjar í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Sjálfur kannast ég við föður piltsins, þann sómamann og ég vota foreldrunum, ættingjum og vinum innilegar samúðarkveðjur.
mbl.is Bænasamkoma á Fáskrúðsfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað kostaði búsáhaldabyltingin?

Nú veit ég ekki hversu alvarleg hún er, þessi seinkun á afgreiðslu gjaldeyrislánsins frá AGS, en Sjálfstæðismenn vöruðu við því að stjórnarkreppa væri ekki það sem við þyrftum ofan á bankahrunið. Þess vegna vildu þeir bíða með kosningar fram á haustið. Kosningarnar hafa tafið fyrir nauðsynlegum aðgerðum að mati AGS en Austurvallafólkið var alveg komið í spreng. Það eina sem vakti fyrir því var að koma Sjálfstæðisflokknum frá.... það hugsaði ekkert lengra.
mbl.is Vaxtastefnunni hafi verið lýst í viljayfirlýsingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamall draumur rætist hjá Ögmundi

Ögmundur Jónasson og félagar hans hjá VG hafa áður talað fyrir sykurskatti. Það gerðu þeir á þeim tímum þegar stjórnvöld undir forystu Sjálfstæðisflokksins höfðu viðleitni til að minnka og afnema skatta. Þetta er þess vegna ekkert neyðarúrræði hjá VG, heldur gamall draumur að rætast, þ.e. að stjórna fólki. Ef ekki með auka skattlagningu, þá með boðum og bönnum.

Skattgreiðandinn, (Homo sívinnandi) fyllir í götin 

taxpayer-lk0211d


mbl.is Sykurskattur fyrir lýðheilsu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rökstuðningurinn

funny

Á kaldastríðsárunum reyndu sumir vinstrimenn að halda því fram að með því að efla vestræna samvinnu við NATO og Bandaríkin, þá væri verið að gera Ísland að einni stjörnunni í bandaríska fánanum. Sjálfstæði landsins væri í hættu en það var auðvitað tóm þvæla. Í dag vilja Kratar gera okkur að stjörnu í evrópska fánanum.

Þó auglýsing Evrópusinna hér að ofan sé góð, þá dugði hún samt ekki til að snúa mér Joyful


mbl.is Rökstuðninginn skortir ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðkvæmar trúnaðarupplýsingar?

Ég botna ekkerti í hræðslu stjórnarflokkanna að upplýsa almenning um þessi drög og gaman væri að vita hvor flokkurinn hafi lagt áherslu á leyndina. Samfylkingin, vegna þess hversu aumingjalegt þetta er, eða VG, vegna svika við kjósendur sína? Nema hvort tveggja sé.

Þeir eru athyglisverðir tveir síðustu liðirnir:

  • Að tryggja lýðræðislegan rétt til að stýra almannaþjónustu á félagslegum forsendum
  • Að standa vörð um réttindi launafólks og vinnurétt.
  • Er það ekki magnað að þurfa yfir höfuð að standa í samningaviðræðum við erlenda aðila um þessa hluti á Íslandi? 


mbl.is ESB-tillagan birt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá Eiríki

Eiríkur Bergmann. Heyrst hafa gagnrýnisraddir um það að Íslendingar hafi ekki verið nógu duglegir að verja sig vegna hryðjuverkalaganna sem Bretar settu á okkur. Skaðinn sem þetta óþokkabragð Breta hefur gert okkur er mikill en það er hugsanlega hægt að lágmarka hann með því að halda uppi vörnum. Það verður best gert í þarlendum fjölmiðlum, með því að fletta ofan af þessari gerræðislegu ákvörðun.

Nokkrir einstaklingar hafa reynt að halda uppi vörnum fyrir okkur en lítið hefur farið fyrir opinberum aðilum á þeim vetvangi. Hvernig ætli standi á því?


mbl.is Brown ræðst alltaf á Ísland í vandræðum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kirkjukór Reyðarfjarðar

Ég er að nota tækifærið til að auglýsa tónleika Kirkjukórs Reyðarfjarðar í Kirkju og Menningarmiðstöðinni á Eskifirði, miðvikudagskvöldið 20. maí nk. Frábær dagskrá er í boði, ókeypis inn en seldar verða kaffiveitingar í hálfleik. Meðal laga á söngskránni er Bohemian Rhapsody en á myndbandinu hér að neðan er frábær útgáfa hjá sprelligosunum í Mnozil Brass.


mbl.is 83% þjóðarinnar fylgdust með Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Holskefla glæpamanna

Mannréttindi á að virða í hvívetna í öllum málum en réttindum fylgja líka skyldur. Ein höfuðskylda allra einstaklinga er að koma heiðarlega fram og það hefur Mansri Hichem ekki gert. Ef veita á þessum manni hæli á grundvelli þess að hann hóti að svelta sig til bana, þá má búast við holskeflu allskyns glæpalýðs viðsvegar að úr veröldinni sem kemur hingað skilríkjalaus. Linkind í svona málum er fljót að fréttast og nóg er af fólki sem er á flótta undan réttvísinni.

amnesty-779056

 


mbl.is „Fullyrðing sem stenst engan veginn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband