Fólkið sem mótmælir hvalveiðum Íslendinga hefur áhyggjur af aflífunaraðferðunum. Fólkið telur að dýrin líði óbærilegar þjáningar og þess vegna vill fólkið stöðva veiðarnar. Dýraverndunarsamtök hafa hingað til haft áhyggjur sem þessar á sinni könnu, en ekki umhverfisverndarsamtök. Störf umhverfisverndarsamtakanna hafa snúist um lífríkið og náttúruna og umgengni mannanna við umhverfið s.s. mengun, röskun á óspilltri og viðkvæmri náttúru og ósjálfbærri nýtingu.
En nú þegar rök umhverfisverndarsamtaka um að hvalirnir sem við ætlum að veiða séu í útrýmingarhættu halda ekki vatni, þá breyta þau áherslum sínum. Almenningur er nefnilega ekki til í að styrkja samtök sem eru með fullyrðingar sem auðvelt er að hrekja. Það verður því að vera hlutverk hvalveiðimanna og/eða stjórnvalda að upplýsa almenning um veiðiaðferðirnar. Eru þær mannúðlegar eða ekki?
![]() |
Mótmæla hvalveiðum í London |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umhverfismál | 26.5.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tveimur þjálfurum í efstu deild karla í fótbolta hafa löngum farið nett í taugarnar á mér en það eru Willum Þór hjá Val og Ólafur Kristjánsson hjá Breiðabliki. Þeir eru alltaf að reyna að vera voða "cool" og klárir og þegar liðum þeirra gengur illa og þeir eru undir pressu, þá verða þeir nánast óþolandi. Þegar þeir eru fengnir sem álitsgjafar í leikjalýsingum, þá mætti halda að fótbolti væri flókin íþrótt, sem hún er einmitt ekki.
Síðustu dagar Willum hjá KR voru hrein pína, því hann virtist vera í taugaáfalli í öllum viðtölum sem tekin voru við hann. Það þarf sjálfsagt sterk bein til að vera þjálfari fótboltaliðs.... en hey... við erum á Íslandi. Það er ekki eins og það séu miljarðar í húfi
![]() |
Willum: Buðum þeim upp á að skora |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | 26.5.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á föstudagskvöldið fór ég í óvissuferð með starfsfólki Grunnskóla Reyðarfjarðar. Farið var með rútu til Norðfjarðar og byrjað þar á pizzuhlaðborði í Egilsbúð og síðan var haldið í siglingu út Norðfjarðarflóann og siglt inn í Hellisfjörð og Viðfjörð sem ganga inn úr flóanum sunnanverðum. Þangað hafði ég aldrei komið áður. Ekkert vegasamband er við Hellisfjörð og einungis gamall vegslóði, illfær og seinfær er í Viðfjörð. Í fjörðunum eru nokkri sveitabæjir sem allir eru farnir í eyði, sá síðasti fyrir rúmum 50 árum síðan. Þessum bæjum er þó mörgum haldið við og notaðir sem sumarbústaðir.
Hellisfjörður heillaði mig mikið en þar var hvalstöð um aldamótin 1900 og mátti sjá ummerki þess. Þegar við sigldum inn spegilssléttan fjörðin sáum við um 20 hreindýr en þetta svæði hlýtur að vera algjör paradís fyrir dýrin, a.m.k. utan veiðitíma. Leiðsögumaður okkar sagði að í Viðfirði væru nokkrir símastaurar og úr þeim hanga símalínurnar til jarðar. Eitt sinn var hann þar á ferð fótgangandi og kom þá að hreindýri sem flækt hafði sig í vírnum og var það ljót sjón. Dýrir var mikið sært og þurfti að aflífa það. Ég skil ekkert í því að vírarnir skuli ekki hafa verið fjarlægðir.
Þetta kort fann ég á blogsíðu Kjartans Péturs Sigurðssonar leiðsögumanns og ljósmyndara. Margar skemmtilegar myndir eru þar af svæðinu, sjá http://photo.blog.is/blog/photo/entry/286998/
![]() |
Verða að fjarlægja símastaur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | 24.5.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dóttir mín sagði mér í dag að vinkona hennar frá Fáskrúðsfirði væri búin að vera Facebook-vinur Alexanders Rybak í nokkra mánuði. Hann spurði hana fyrir nokkrum vikum hvort hún fylgdist með Eurovision og hún svaraði því játandi en spurði hann svo hvers vegna hann væri að spyrja að því.
Stráksi svaraði "Það kemur í ljós"
![]() |
Mætir Alexander Rybak í Höllina? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 23.5.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Myndbandið hér að neðan er BARA yndislegt.
![]() |
Hómer í fótspor Susan Boyle |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | 23.5.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)


![]() |
Margrét Lára varð markahæst í Evrópukeppninni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 23.5.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26 þúsund miljón króna nótulaus viðskipti! Er þetta ekki makalaust?
Í Mbl frétt frá 15. janúar s.l segir Telma Halldórsdóttir, stjórnarmaður í Q Iceland Finance ehf., eignarhaldsfélags sjeiks Mohammed Bin Khalifa Al-Thani, "allt uppi á borðum vegna kaupa félagsins á hlutabréfum í Kaupþingi í september sl. Hún segir jafnframt að félagið sé skuldlaust við Kaupþing". Í fréttinni segir einnig: Það er eðlilegt að það sé verið að skoða öll viðskipti sem áttu sér stað fyrir hrunið, sérstaklega viðskipti af þessari stærðargráðu," segir Telma. Hún segist ekki kunna skýringar á því hvers vegna kvittun fyrir millifærslu finnist ekki, hún hafi kvittanir frá Kaupþingi undir höndum sem staðfesti viðskiptin.
Strax í upphafi bankahrunsins hafði ég samband við sænskan kunningja minn í Stokkhólmi og fyrrverandi starfsmann Kaupþings. Ég bloggaði um það 9. okt. sjá HÉR Ég held að ég hafi verið fyrstur á Íslandi til að skrifa um sjeikinn og meint "criminal act" hans og kaupþingsmanna. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar.... eða ætti maður e.t.v. frekar að segja; síðan hefur mikill pappír runnið í tætarana?
![]() |
Nokkrir grunaðir um auðgunarbrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | 23.5.2009 (breytt kl. 10:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8. bekkur Grunnskóla Reyðarfjarðar bar sigur úr býtum í samkeppninni Reyklaus bekkur 2009 sem haldin er ár hvert á vegum Lýðheilsustöðvar. Verkefnið þeirra samanstóð af veggmyndum, borðspili sem heitir No smoking, bókamerkjum og vinnustaðafræðslu. Vinnustaðafræðslan fór fram í matsal Alcoa þar sem krakkarnir sýndu veggmyndirnar sínar, fluttu fyrirlestra með glærusýningum og dreifðu bókamerkjum.
Verðlaunin eru 3ja daga ferð til Kaupmannahafnar fyrir bekkinn og umsjónarkennara hans. Flogið verður til Kaupmannahafnar á þriðjudag í næstu viku og á dagskránni er meðal annars ferð í Tívoli og dýragarðinn. Erla Ormarsdóttir er umsjónarkennari 8. bekkjar og hélt utan um verkefnið með krökkunum og það skilaði þessum glæsilega árangri.
Krakkarnir í skólanum voru kallaðir saman í hátíðarsalnum fyrir fyrsta tíma á mánudaginn og engin vissi neitt hvað stóð til. Eftir að skólastjórinn hafði talað við krakkana um efni ótengdu verðlaununum, þá kallaði hún 8. bekkinn upp á svið. Engan grunaði neitt og allra síst að krakkarnir væru að fara í fría ferð til Kaupmannahafnar. Svipurinn á krökkunum var óborganlegur þegar Erla tilkynnti þeim úrslitin í samkeppninni og svo brutust út mikil fagnaðarlæti eins og sjá má á myndinni.
Menntun og skóli | 22.5.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Söngskemmtun í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði í kvöld kl. 20.00.
Hinn "rómaði" Kirkjukór Reyðarfjarðar verður með veraldlega söngskemmtun, ásamt Englakór tónlistarskólans og tvöföldum kvartett karlanna í Stigamönnum. Ókeypis inn, kaffisala.
Hinn "rómaði" Kirkjukór Reyðarfjarðar.
Menning og listir | 20.5.2009 (breytt kl. 15:14) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég var að ná mér í uppfærslu á Explorernum og sá þá nýjan fídus en hann er sá að nú er hægt að velja eitthvert orð á netsíðu, segjum t.d. pizza og þá kemur lítið icon sem maður smellir á. Þá opnast gluggi og þar getur maður valið "Live search maps" og þá kemur upp kort af næsta pizzustað.
Ég prófaði á mbl.is orðið grásleppuvertíð, en sleppti vertíð til þess að athuga hvar ég fengi grásleppu. Þá kom upp kort af bænum Graslupp í Austurríki
Vefurinn | 20.5.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 3
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 947157
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Saltfisksfræði
- Tveir útverðir
- Hvað er menning og hvað er hámenning?
- Kristrún: Mun taka tíma
- Af hverju er haldið að gervigreind leysi það sem maðurinn gerir aftur og aftur
- Dembur
- Eftir Haag bíður heimavinnan
- Lýðræði og þátttaka
- Hættum að biðjast afsökunar fyrir að verja okkar siðmenningu
- Pólitísk áhætta og sjávarútvegurinn