Vinstra pakkið sleikir upp marxistan

Það er greinilegt að ráðherrar vinstristjórnarinnar hafa látið undan þrýstingi háværra radda (í bloggheimum? Errm) um að blanda íslenskum stjórnmálum í viðkvæm utanríkismál með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Þetta er auðvitað hégómi og ekkert annað. Trúarleiðtogi Tíbeta er alls góðs maklegur, en hver er tengingin við íslenska ráðherra í ríkisstjórn Íslands? Eru þeir að koma á viðskiptasamböndum í Tíbet?

Vatican


mbl.is Mótmæla fundum íslenskra ráðamanna með Dalai Lama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talar hann í umboði allra?

Mér hefur skilist að ekki sé öllum illa við Séra Gunnar, á Selfossi. Jafnvel að þeir séu heldur færri en hitt. En þetta er kanski vitleysa í mér Errm

funny_pictures_9591


mbl.is Sóknarbörnum létt í bili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Háir skattar :-)

tax-cheats
mbl.is Real kannast ekki við Ronaldo-samning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa alltaf verið á móti þessum vegi

Ef þjóðvegur 1 lægi um Svínavatnsleið, þá styttist leiðin norður um 18 km. Það er því augljóst að þessi samgöngubót yrði ein sú arðsamasta sem hægt er að ráðast í. Ég á erfitt með að trúa því að hagsmunir Blönduóss séu miklir í því að fá umferðina í gegn hjá sér. Ein vegasjoppa myndi sennilega missa spón úr aski sínum.

Þingmenn kjördæmisins hafa alltaf lagst gegn þessari hugmynd og sömuleiðis bæjaryfirvöld á Blönduósi. Það er því fyrirsláttur í þeim að segja að umrædd leið sé á engan hátt forgangsverkefni við þær aðstæður sem nú eru uppi. Hins vegar eru fleiri en Blönduósbær á móti þessu, því Umhverfisráðuneytið staðfestir ákvörðun Skipulagsstofnunar um að hafna tillögu Leiðar ehf. að matsáætlun Svínavatnsleiðar. "Í umsögn Húnavatnshrepps um tillögu Leiðar ehf. að matsáætlun sagði að í ljósi fram kominna athugasemda landeigenda og ábúenda í Húnavatnshreppi leggist hreppsnefnd Húnavatnshrepps gegn fyrirliggjandi tillögu að matsáætlun. Í umsögn Blönduósbæjar sagði að hugmyndin sé í hróplegu ósamræmi við skipulag svæðisins, afstöðu sveitarstjórnarmanna, landeigenda og ábúenda þeirra jarða sem fyrir raski myndu verða". Sjá  HÉR


mbl.is Hafnar erindi um Svínavatnsleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagsmunir og prinsipmál

Prinsipmál geta kostað peninga. Við getum verið þeirrar skoðunnar í hjarta okkar að tiltekin skoðun eða trú sé réttlát og sönn, en þegar stjórnvöld taka opinbera afstöðu til málefnisins, þá getur það haft áhrif á afkomumöguleika þjóðarinnar. Fyrir venjulega fjölskyldu á Íslandi sem berst í bökkum fjárhagslega, getur það skaðað afkomumöguleika hennar ef stjórnvöld taka afstöðu með eða á móti tilteknum málum í öðrum löndum. Um leið og það kostar einstaklinga í þjóðfélaginu peninga, þá kostar það þjóðfélagið peninga. Um leið og það kostar þjóðfélagið peninga, þá skerðir það svigrúm þess til þess að veita félagslega þjónustu.  

Það er helvíti fúlt að vera í þessari aðstöðu.

1


mbl.is Dalai Lama í heimsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GRANDE GOLAZO DI HALLFREDSSON

Mark Emils Hallfreðssonar fyrir Reggina gegn Juventus 26. apríl sl. er talið eitt af 30 fallegustu mörkum í Evrópu þetta keppnistímabilið. Hinn frægi markvörður Juventus, Buffon, átti aldrei möguleika í þennan þrumufleyg.


Keðjuverkun

Þessar skelfilega vitlausu álögur munu hafa víðtæk áhrif og hækka skuldir heimilana, eins og Tryggvi bendir á. Vísitala og verðbólga fara á flug og verðtrygging lána mun fara illa með skuldsett fólk.

Þessu vinstra liði er ekki viðbjargandi GetLost


mbl.is Áfengi og eldsneyti hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjálfarinn og drengurinn

soccer-coachÁ ákveðnum tímapunkti í leiknum kallaði þjálfarinn einn strákinn af varamannabekknum til sín og sagði við hann: "Þú veist hvað samvinna er? Þú veist hvað liðsandi er?

Strákurinn kinkaði kolli

Þjálfarinn hélt áfram: "Þú skilur að það er sama hvort við vinnum eða töpum, við gerum það sem lið, er það ekki?

Strákurinn kinkaði aftur kolli.

Þjálfarinn hélt enn áfram og sagði: Þó einhver brjóti á þér úti á vellinum, þá er það ekki íþróttamannsleg hegðun að bölva og ragna og hefna þín með ruddaskap á viðkomandi leikmanni, er það nokkuð?

Strákurinn hristi höfuðið niðurlútur.

Og enn hélt þjálfarinn áfram: Og þegar ég tek þig af velli og gef öðrum leikmanni tækifæri til að spila, þá er það mikill dónaskapur að kalla þjálfarann þinn hálfvita, er það ekki? Þú skilur þetta allt, er það ekki?

Strákurinn jánkaði þessu afar skömmustulegur.

"Gott" sagði þjálfarinn. "Farðu nú til mömmu þinnar og útskýrðu þetta fyrir henni".


mbl.is Eiður Smári: Mikill heiður (myndskeið)
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spilling, einkavinavæðing

2986482247_a1522f61baVinstrimenn hafa reitt hár sitt og skegg undanfarin ár vegna pólitískra ráðninga í ríkisgeiranum. Skilaboðin til almennings í landinu hafa verið skýr. Vandlæting og hneikslun, særð réttlætiskennd vegna klíkuskapar andstæðinga þeirra og þroskuð siðferðisvitund þeirra sjálfra, sem er öllum hægrimönnum æðri.

Ég vissi að vinstriflokkarnir yrðu ekki lengi að opinbera sig sem hræsnara dauðans. Einkavinir forystumanna vinstriflokkanna voru búnir að bíða í mörg ár á hliðarlínunni og óþolinmæði var farið að gæta í miklum mæli. Þess vegna var inngróin heiftin í forystulið vinstrimanna orðin taumlaus á köflum. 


mbl.is Einar Karl ráðinn til Landspítalans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fer ekki almenningur að átta sig?

crop_500xÁlfheiður Ingadóttir er formaður viðskiptanefndar. Finnst fólki það virkilega í lagi að hún gegni því hlutverki á þingi? Hún sagði að það væri gert ráð fyrir um 585 milljörðum til að endurfjármagna bankana, Seðlabankann og Sparisjóðina á fjárlögum eða fimmtíu til sextíu prósent af vergri landsframleiðslu. Hún sagðist telja að hann væri að tala um brúttóskuldir án þess að hún vissi það.

Það er dapurlegt að heyra að fulltrúi almennings sem settur er í ábyrgðarstöðu á Alþingi, viti ekki hvað snýr upp eða niður í þeim málaflokki sem henni tilheyrir. Sem stjórnarandstöðuþingmaður gargaði Álfheiður í ræðustóli og heimtaði gagsæi og aðgerðir.


mbl.is Umskiptingar á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband