Geðveikissvipurinn

hallgheMér brá þegar ég sá Hallgrím Helgason í sjónvarpsfréttum fyrir utan Stjórnarráðið veitast að bíl Forsætisráðherra, Geirs Haarde. Svipurinn á andliti hans var svipur stjórnlauss manns af heift og bræði. Ég hræðist einstaklinga sem eiga þetta í sér og vil ekki vera í návist þeirra.

Einhverskonar langlundargeð hlýtur Illugi Gunnarsson að hafa úr því hann bíður Hallgrími Helgasyni í brúðkaup sitt. Kannski eru þeir tengdir á einhvern hátt, nema að þetta sé "p.r. stunt" hjá Illuga; sýnir hversu víðsýnn og sterkur hann sé.


mbl.is Hattinum stolið af Hallgrími
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítil mótspyrna

sexy12Ég skellti mér á stelpurnar okkar í dag. Síðasti skóladagurinn í þessari staðlotu var búinn í fyrra fallinu og veðrið frábært og vel fallið til þess að góna á ungar stelpur elta bolta. 

Ser-píurnar voru einhverjum klössum lakari en stelpurnar okkar, það var nokkuð ljóst strax í upphafi. Meira að segja upphafsspyrnan hjá þeim var ólögleg og þær þurftu því að tvítaka byrjunina, nokkuð sem ég amn ekki eftir að hafa séð áður í fótboltaleik. Spyrnugeta þeirra var heldur ekki upp á marga fiska því þegar þær áttu útspark þá skapaðist oft stórhætta við markið hjá þeim.

En flottur leikur hjá okkar stelpum því það getur verið erfitt að spila gegn liðum sem pakka í vörn. Auk þess er ekki ólíklegt að stelpurnar okkar hafi haft EM örlítið á bak við eyrað, m.t.t. meiðsla og slíks.

P.s. myndin er ekki tekin á leiknum í dag.


mbl.is Margrét Lára sá um Serbana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá honum

Það er ekki hægt að kvarta yfir því að menn sjái að sér og iðrist. Ef hugur fylgir máli hjá hinum brotlega, þá á hann fyrirgefninguna skilið. Ef hugur fylgir ekki máli... þá á hann ekkert skilið og slíkur einstaklingur endar óhamingjusamur. Sumir virðast ekki hafa næga siðferðisvitund til þess að sjá að einhverjir tilteknir hlutir eru rangir. Þeir einfaldlega sjá það ekki þó flestir aðrir geri það. 

Ofnotkun vímugjafa kemur oftar en ekki ranghugmyndum af stað. Stundum eru þessar ranghugmyndir um eigið ágæti... stundum eitthvað annað.

Í þessu myndbandi er farið yfir þau 10 helstu dóp sem ætti að forðast ef fyrirhugað er að fá sér ökutúr.

Ef myndbandið er dálitla stund að hlaðast inn, má smella á "pásu". Það hleðst þá inn án þess að spilast um leið og þið getið smellt á "play" þegar ykkur hentar.


mbl.is Þórður biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvítflibbar

Glæpamenn í efnahagsbrotadeildinni eru gjarnan nefndir "Hvítflibbaglæpamenn". Þegar þessir gaurar fara á stjá, þá er oft um miljarða að tefla. Þjóðfélagið þarf sérstaka vernd gagnvart svona mönnum og það ber að fagna allri þeirri erlendu aðstoð sem við getum fengið. Það er sama hvaðan gott kemur, jafnvel þó frá Bretum sé. Blush

4931_whitecollarcrime_toon


mbl.is Rannsókn í samvinnu við SFO
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í raun tengt Icesave

Um leið og pólska lánið er tengt greiðslum AGS, þá tengist það Icesave-málinu. Hik AGS vegna þróunar umræðunnar á Íslandi um Icesave samkomulagið, er augljóst. Ags er að hugsa vandlega næsta leik.

imf7js


mbl.is Lán frá Pólverjum fylgi sama mynstri og Norðurlandalánin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég get staðfest þetta

draft_lens5323752module40193782photo_1245065229funny_road_signs_elderly_people_cemetary

110-old-couple-cartoon

An old man goes to the doctor and says "Dr., I don't know what's wrong
with me.  My dick is orange."
The  Dr. tells him to pull down his pants and let him take a look.  He
has no idea what is wrong so he asks the guy if he has recently painted
anything orange.
The old man said "No."
The Dr. thinks for a minute and then asks the guy if he has recently
been exposed to any chemicals at work.
The old man said "No, I'm retired."
The Dr. then asks the guy if he could have been working with any
chemicals in his garage.
The old man replied "No Dr., I told you, I'm retired.  All I do is sit
around all day, watch pornos and eat Cheetos...


mbl.is Verðum hamingjusamari með aldrinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væri gaman að sjá óklippta myndbandið

633538693164070447-shesjustbittershegotexludedinthefckingprocess

Myndin tengist ekki færslunni.... nema óbeint Joyful


mbl.is Ásakanir Saving Iceland ekki svara verðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Falsað myndband

Það er einkennilegt að Saving Iceland segist leggja fram myndband máli sínu til sönnunar en svo er myndbandið klippt til. Það er greinilegt að upptakan fær ekki að rúlla "ómenguð" og svo er ekkert hljóð heldur. Var hljóðið kannski klippt út til að verja mótmælendurna? Varla til að draga taum lögreglunnar.

Ég bendi á lygaáróðurinn í Saving Iceland með hjálp fyrrverandi varaþingmanns Hjörleifs Guttormssonar í Alþýðubandalaginu sáluga, Guðmundar Beck, fyrrv. bónda á Kollaleiru í Reyðarfirði, í pistlinum hér á undan. Einnig er þingmaður Borgarahreyfingarinnar, Birgitta Jónsdóttir að verja þennan glæpalýð og ofbeldið sem það sýnir gegn lögreglunni, á bloggsíðu sinni. Svo er fólk hissa á því að hreyfingin sé að likðast í sundur! Shocking


mbl.is Saving Iceland: Rógburður lögreglu og lygar fjölmiðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott

Meira af þessu Saving Iceland ! Og því meira, því betra og því færri aðhyllast þessa öfga.

icelandmapjpeg

Á þessari áróðursmynd Saving Iceland, er vitnað í Guðmund Beck, fyrrum bónda á ríkisjörðinni Kollaleiru sem er rétt innan við Reyðarfjörð. (sést betur ef smellt er tvisvar á myndina) Þar segir:

"Guðmundur Beck, farmer forced from his home by Alcoa´s smelter, Reyðarfjörður".

Við Reyðfirðingar sem þekkjum Guðmund og á Reyðarfirði þekkja allir alla, vitum betur. Þegar ég sá þessu ítrekað haldið fram á ýmsum bloggsíðum og reyndi að leiðrétta þessa ömurlegu vitleysu, þá sagði fólk að hann segði þetta sjálfur. Ég hringdi þá í Guðmund og spurði hann hvort hann segði fólki virkilega þetta. Guðmundur hló þá sínum alkunna hlátri og sagði þetta ekki rétt.

Allir á Reyðarfirði vita að Guðmundur var mjög á móti þessum framkvæmdum öllum fyrir austan, en engum dytti í hug að flæma karlinn burt, enda á hann hér stóran frændgarð og vinahóp. En Guðmundur hefur samt greinilega leyft öfgasamtökum að afskræma sannleikann í sínu nafni.

Þess má geta að Guðmundur var varaþingmaður Hjörleifs Guttormssonar fyrir Alþýðubandalagið á sínum tíma.

P.s. Endilega lesið þetta pakat. Það stækkar enn meir ef smellt er í þriðja sinn. Það er e.t.v. ekkert skrítið að þetta unga fólk telji sig vera í göfugu starfi, ef það trúir þessari ótrúlegu vitleysu.


mbl.is Sparkað í höfuð lögreglumanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leigubílstjóri og bloggari

Austurglugginn , fréttablað Austurlands, gerir fyrirferðarmikla úttekt á tekjum 715 Austfirðinga. Í formála úttektarinnar segir m.a.

"Listarnir eru ekki tóm forvitni og hnýsni. Þeir endurspegla að mörgu leyti austfirskt samfélag. Við tökum fólk sem uppfyllir ákveðin skilyrði um lágmarkstölur og fleiri sem hafa haft áhrif í sínu samfélagi".

meet_the_bloggerÞað kom mér á óvart að ég er á þessum lista. Ég er titlaður "leigubílstjóri og bloggari" á listanum. Þar sem ég er ekki í tekjuháum hópi úttektarinnar, þá hlýt ég að tilheyra síðarnefnda hópnum....  

"...sem hafa haft áhrif í sínu samfélagi".

Það vekur athygli hversu margir starfsmenn álversins eru í tekjuhærri hópnum á listanum. Bæði stjórnendur og lægra settir. Ég sé þarna iðnaðarmenn hjá álverinu með tæpa miljón á mánuði.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband