Hvítflibbar

Glæpamenn í efnahagsbrotadeildinni eru gjarnan nefndir "Hvítflibbaglæpamenn". Þegar þessir gaurar fara á stjá, þá er oft um miljarða að tefla. Þjóðfélagið þarf sérstaka vernd gagnvart svona mönnum og það ber að fagna allri þeirri erlendu aðstoð sem við getum fengið. Það er sama hvaðan gott kemur, jafnvel þó frá Bretum sé. Blush

4931_whitecollarcrime_toon


mbl.is Rannsókn í samvinnu við SFO
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Lifi fjalldrapinn!

Ásgeir Rúnar Helgason, 13.8.2009 kl. 09:24

2 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Það er erfitt að svara skoðanakönnuninni þinni eins og spurt er. Ég er á því að við eigum að samþykkja með ákveðnum fyrirvörum. Alls ekki eins og samningurinn er núna. En endilega samþykkja sem fyrst með fyrirvörum m.a.  um eignir gamla Landsbankans og hlutfalla af þjóðarframleiðslu frekar en fasta upphæð.

Ásgeir Rúnar Helgason, 13.8.2009 kl. 09:27

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er á því að spurningin sé um upphaflega samninginn, EKKI er HÆGT að gera EINHLIÐA fyrirvara við samning sem er undirritaður og þar með frágenginn, því BER að hafna honum og semja upp á nýt.  Þetta er ekkert flókið Ásgeir R.

Jóhann Elíasson, 13.8.2009 kl. 11:43

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, þessi könnun fer að vera úrelt.

Gunnar Th. Gunnarsson, 13.8.2009 kl. 16:51

5 Smámynd: Pétur Kristinsson

Það vill nefnilega skemmtilega til að Bretar eiga líka hagsmuna að gæta í þessu máli. Það virðist vera að hver þjóð sé að reyna að leysa úr eftirköstum hrunsins einar og sér í stað þess að vinna saman því ljóst er að mörg þessara mála teygja sig yfir mörg landamæri.

Pétur Kristinsson, 14.8.2009 kl. 13:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband