Monica Lewinsky

This summer we celebrate a special birthday....

Monica Lewinsky turns 36. Can you believe it?

It seems like only yesterday she was crawling around the White House on her hands and knees,
putting everything in her mouth...

They grow up so fast, don't they

MonicaLewinsky

"She´s a Lady" er gamall Tom Jones slagari Happy


Nýaldarklám á netinu

New age Internet p*rn: Hey baby wanna come over to myspace so i can twitter ur yahoo till you google all over my facebook?

funny-pictures-porn-watching-cat


Mjög jákvætt, en.....

Það er auðvitað mjög jákvætt að hægt sé að selja meira rafmagn frá Kárahnjúkum en upphaflega var gert ráð fyrir, en mér finnst samt álit Skipulagsstöfnunar ekkert sérlega traustvekjandi.

"Sýnt hefur verið fram á að dreifing efnisins frá útblæstri álversins verði víðast innan þeirra viðmiðunarmarka sem tilgreind eru í reglugerð og fjöldi tilvika þar sem styrkurinn fer yfir mörk, innan þess fjölda sem reglugerð heimilar.

Með hliðsjón af ofangreindu og ekki síður því að bráðabirgðaniðurstöður vöktunar á starfstíma verksmiðjunnar benda til þess að styrkur brennisteinsdíoxíðs í lofti hafi aldrei farið yfir viðmiðunarmörk reglugerðar þá telur Skipulagsstofnun að þrátt fyrir rýrari loftgæði vegna aukins styrks brennisteinsdíoxíðs í lofti þá verði loftgæðin engu að síður ásættanleg, m.t.t. viðmiða reglugerða." (Undirstrikanir mínar)

Þetta hljómar eins og: "Loftgæðin eru verri, en þetta er svo sem í lagi" Errm

Reyndar veit ég að viðmiðanir reglugerða eru margfalt undir hættumörkum, a.m.k. fyrir fólk, en maður veltir því óhjákvæmilega fyrir sér hvaða áhrif þetta muni hafa á gróðurfar í firðinum, t.d. berjaland.

 Það væri gaman að fá að sjá nánari útlistanir á þessu.


mbl.is Aukning Fjarðaáls ekki háð umhverfismati
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversu klár er hægri fóturinn

rightfoot Nú situr þú við tölvuna þína og lest þetta.

Lyftu hægri fætinum og hreyfðu hann í hringi, réttsælis.

Sko þig, þetta gastu! Haltu áfram að snúa fætinum og lyftu nú hægri hendinni og teiknaðu töluna 6 út í loftið með fingrinum. W00t


Neikvæður fréttaflutningur á Stöð2

Uppleggið í fréttum Stöðvar tvö í gærkvöldi var að liðið hefðu tapað öllum leikjunum á EM. Tónninn var afar neikvæður og fréttastofunni til skammar. Íslenskt lið í fyrsta sinn á stórmóti í fótbolta og þó liðið hafi tapað leikjum sínum, þá var það landi og þjóð til mikils sóma.

Vissulega náði liðið ekki að sýna sínar bestu hliðar, en með örlitla meiri reynslu í farteskinu hefði liðið farið í 8 liða úrslit. Ég er sannfærður um það.

SKAMM... Töð Stvö! Angry


mbl.is EM: Reynslunni ríkari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Al Gore og fellibyljirnir

 Í Óskarsverðlaunamynd Al Gore, eru margar fullyrðingar sem ekki hafa staðist nánari skoðun. "Venjulegt" fólk, leikmenn, hljóta að spyrja sig þeirrar spurningar; hvers vegna allar þessar ýkjur og rangfærslur? Hvað gengur manninum til? Og hvernig í ósköpunum er hægt að verðlauna "fræðslumynd" sem er svona uppfull af vitleysum?

Alls hafa 35 veigamiklar fullyrðingar í myndinni "The Inconvinient Truth", verið opinberaðar sem hrein fölsun eða í besta falli miklar ýkjur. Sjá HÉR

Ein fjölmargra fullyrðinga í myndinni er að fjöldi fellibylja sé að aukast og að þeir séu að verða æ öflugri með tilheyrandi tjóni. Þetta er rangt. Meira að segja leikmenn geta afsannað þessa fullyrðingu aðveldlega með því einfaldlega að skoða upplýsingar sem eru aðgengilegar á netinu, t.d. HÉR 

Ef skoðaðir eru fellibyljir í karabíska hafinu s.l. 15 ár, kemur eftirfarandi í ljós:

  • 2008:    8 
  • 2007:    5
  • 2006:    6   Samtals: 36
  • 2005:  10
  • 2004:    7
  • -------------
  • 2003:    6
  • 2002:    4
  • 2001:    9   Samtals: 35
  • 2000:    8
  • 1999:    8
  • -------------
  • 1998:  10
  • 1997:    3
  • 1996:    9   Samtals: 36
  • 1995:  11
  • 1994:    3

Meðaltal þessara 15 ára er 7,1, en síðustu 3gja ára 6,3. Útlit er fyrir enn færri á þessu ári að mati Alþjóða fellibyljamiðstöðvarinnar í Miami, Florida og NOAA

Um það er ekki deilt að hnattræn hlýnun hefur átt sér stað og samhengi er á milli þess og fjölda fellibylja. En  ekki er að sjá að á þessu tímabili sé um fjölgun fellibylja sé að ræða. Töluverðar sveiflur er í tíðni fellibyljana og árunum 1970- 1990 voru þeir færri, en á árunum 1965-1969 voru þeir 34, eða svipað og á tímabilunum í töflunni hér að ofan. Fyrirbærin "El Nino" og La Nina" í kyrrahafi, hafa sennilega áhrif á þetta.

al-gore-academy-awards


mbl.is Jimena sækir í sig veðrið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slakt hjá Fjarðabyggð - skoðanakönnun

Það var ekki að sjá á leik Fjarðabyggðar í dag að liðið vildi sigra í leiknum en Selfyssingar vildu það svo sannarlega.

Annars hefur þetta verið fínt tímabil hjá Fjarðabyggð því liðinu var spáð falli af þjálfurum liðanna í deildinni. Skoðanakönnun um möguleika liðsins á að komast upp sýnir að ekki voru margir sem höfðu trú á því.

Ég bendi á nýja könnun hér til hliðar.

Spurt var:

Kemst Fjarðabyggð í úrvalsdeildina?
20.0%
Nei 80.0%

mbl.is Selfoss fékk fín stig á Eskifirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Knúið af skattlagningaráráttu

Allir vita að ær og kýr vinstrimanna er skattlagning af öllu tagi. Með hræðsluáróðri um hnattræna hlýnun af mannavöldum, sér skattfólkið sér leik á borði að leggja aukaálögur á fyrirtæki, til þess að geta útdeilt auðnum.

http://scienceandpublicpolicy.org/videos/climate_changes_trailer.html skoðið þetta.


mbl.is Ríkisstjórnin móti loftslagsstefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðernisteljari

Ég rakst á þennan skemmtileg flagg-teljara hjá http://zeriaph.blog.is/blog/zeriaph/


18 different countries have visited this site!



  CountryVisitorsLast New Visitor
1.Iceland667August 28, 2009
2.United States10August 28, 2009
3.United Kingdom7August 28, 2009
4.Denmark7August 28, 2009
5.Norway6August 28, 2009
6.Sweden5August 28, 2009
7.Finland4August 28, 2009
8.Germany3August 28, 2009
9.Netherlands3August 28, 2009
10.Canada2August 28, 2009
11.Czech Republic1August 28, 2009
12.Estonia1August 28, 2009
13.Switzerland1August 28, 2009
14.Luxembourg1August 28, 2009
15.Mexico1August 28, 2009
16.Brazil1August 28, 2009
17.Lithuania1August 28, 2009
18.Spain1August 28, 20

Ég hef fengið heimsóknir frá 18 löndum. Gaman að þessu. Ekki veit ég afhverju það hafa komið upp tvö box með teljaranum en það tók dálítinn tíma að þau birtust á bloggsíðunni eftir að ég hafði sett það inn. Kannski hef ég sett þetta tvisvar inn Pinch

P.s. Ef þið smellið á teljaran þá kemur upp vefsíða og þar er einfaldlega farið í "Get yours".... ef þið viljið fá ykkur eintak.


Blekking Steingríms og Jóhönnu

Ansi mörg myndbönd um þetta Icesave klúður er komið á youtube. Þetta sá ég í dag.

Svo er hér annað eldra  Grin

 


mbl.is Sömdum við ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband