Öll myntkörfulán?

Samkvæmt þessu þá hlýtur þetta að kosta meira en 20% flatur niðurskurður sem þetta sama fólk sagði að væri allt of dýrt fyrir þjóðfélagið. Hvað hefur breyst?

Svo er bara talað um lán þarna. Bílalán, neyslulán...?

funny

Ég vona samt auðvitað að þessi hugdetta hjá þeim sé raunhæf.... Errm


mbl.is Greiðslubyrði aftur fyrir hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara horfa, ekki snerta

obama-checking-out-butt

Obama hefur auga fyrir fallegum rassi


mbl.is Vændiskona segir frá í sjónvarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna gagnrýnir ESB !

Jóhönnu finnst ESB ekki hafa tekið sinn hluta af ábyrgðinni á gölluðu regluverki um banka og fjármálastarfsemi.

Þetta er nýr tónn hjá ESB-rassasleikjunum. En þetta er auðvitað lykilatriði í öllu málinu. Íslendingar eiga ekki að bera einir ábyrgð á þessu klúðri.


mbl.is Ekki séð fyrir enda Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hlakka til þorrablótsins

Eitt elsta þorrablót landsins er haldið á Reyðarfirði, en það hefur verið haldið á hverju ári án undantekninga í um 80 ár.

thorrablot1Ég læt mig ekki vanta á þessa frábæru skemmtun en sá háttur er hafður á að kosin er ný þorrablótsnefnd í lok hvers blóts, 6 hjón og tveir einhleypir.  Venjan hefur verið að kjósa í nefndina fólk sem hefur búið á staðnum í a.m.k. 5-10 ár. Nefndin sér svo um skemmtiatriði með söng og leik. Segja má að um nokkurskonar áramótaskaup sé að ræða, árið er gert upp og góðlátlegt grín er gert að samborgurunum.

Reyndar eru til gamlir og grónir Reyðfirðingar sem ekki hafa látið sjá sig á blóti í mörg herrans ár. Ástæðan mun vera sú að þeir móðguðust vegna skemmtiatriðana, en reynt er þó að gæta velsæmis í hvívetna svo ekki komi til slíks, en fólk er auðvitað mis viðkvæmt og spéhrætt fyrir þessu. Sjálfur hef ég orðið þess heiðurs aðnjótandi nokkrum sinnum að gert er grín að mér og ég er stoltur af því. Tounge

Undanfarin ár hefur maður saknað hvalsins í trogunum, en nú verður vonandi breyting á því..... mmmmmm Happy


mbl.is 1.500 tonn af hval til Japan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftirlitsiðnaðurinn

Hver á að hafa eftirlit með Fjölmiðlastofu?

Í hádegisfréttum útvarpsins sagði Menntamálaráðherra, aðspurð um hvort annarleg sjónarmið lægju að baki ráðningu Davíðs:

  „Ég veit ekki hvað kalla skal annarleg sjónarmið. En það liggur auðvitað fyrir að þarna er ritstjóri með mjög ákveðnar skoðanir sem vafalaust hljóta að setja mark sitt á fjölmiðilinn í kjölfarið.“ (undirstrikun mín)

Þetta eru fyndin ummæli. Ætli flokksfélagar hennar hafi húmor fyrir þessu?

 


mbl.is Fjölmiðlastofa hafi eftirlit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Abott & Costello

Margir hafa séð hið óborganlega atriði hjá Abott og Costello  "Who´s on first"

Ef félagarnir væru með uppistand í dag, þá gæti atriði þeirra verið eitthvað þessu líkt:

COSTELLO CALLS TO BUY A COMPUTER FROM ABBOTT
ABBOTT: Super Duper computer store. Can I help you?
COSTELLO: Thanks I'm setting up an office in my den and I'm thinking about buying a computer.
ABBOTT: Mac?
COSTELLO: No, the name's Lou.
ABBOTT: Your computer?
COSTELLO: I don't own a computer. I want to buy one.  
ABBOTT: Mac?
COSTELLO: I told you, my name's Lou.
ABBOTT: What about Windows?
COSTELLO: Why? Will it get stuffy in here?
ABBOTT: Do you want a computer with Windows?
COSTELLO: I don't know. What will I see when I look at the windows?
ABBOTT: Wallpaper.
COSTELLO: Never mind the windows. I need a computer and software.
ABBOTT: Software for Windows?
COSTELLO: No. On the computer! I need something I can use to write proposals, track expenses and run my business. What do you have?
ABBOTT: Office.
COSTELLO: Yeah, for my office. Can you recommend anything?
ABBOTT: I just did.
COSTELLO: You just did what?
ABBOTT: Recommend something.
COSTELLO: You recommended something?
ABBOTT: Yes.
COSTELLO: For my office?
ABBOTT: Yes.
COSTELLO: OK, what did you recommend for my office?
ABBOTT: Office.
COSTELLO: Yes, for my office!
ABBOTT: I recommend Office with Windows.
COSTELLO: I already have an office with windows! OK, let's just say I'm sitting at my computer and I want to type a proposal. What do I need?
ABBOTT: Word.
COSTELLO: What word?
ABBOTT: Word in Office.
COSTELLO: The only word in office is office.
ABBOTT: The Word in Office for Windows.
COSTELLO: Which word in office for windows?
ABBOTT: The Word you get when you click the blue 'W'.
COSTELLO: I'm going to click your blue 'w' if you don't start with some straight answers. What about financial bookkeeping? You have anything I can track my money with?
ABBOTT: Money.
COSTELLO: That's right. What do you have?
ABBOTT: Money.
COSTELLO: I need money to track my money?
ABBOTT: It comes bundled with your computer.
COSTELLO: What's bundled with my computer?
ABBOTT: Money.
COSTELLO: Money comes with my computer?
ABBOTT: Yes. No extra charge.
COSTELLO: I get a bundle of money with my computer? How much?
ABBOTT: One copy.
COSTELLO: Isn't it illegal to copy money?
ABBOTT: Microsoft gave us a license to copy Money.
COSTELLO: They can give you a license to copy money?
ABBOTT: Why not? THEY OWN IT!
(A few days later)

ABBOTT: Super Duper computer store. Can I help you?

COSTELLO: How do I turn my computer off?

ABBOTT: Click on 'START'.............

 


Davíðs-syndrómið nær nýjum hæðum

Það er skondið að lesa bloggfærslur hatursmanna Davíðs Oddssonar. Margir ætla að hætta að blogga á mbl. og í athugasemdum við nokkur bloggin er þeirri hugmynd varpað fram að þeir sem hætta núna, sameinist á einhverju öðru blogg-vefsvæði.

Ég mun ekki sækja í þann félagsskap... lífið er of stutt fyrir leiðindi.


mbl.is Ráðning ritstjóra vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú birtir til hjá Mogganum

Svei mér þá, ef ég gerist bara ekki áskrifandi aftur að Mogganum.

Ég hef séð að fjölmargir bloggarar hafa verið að velta sér upp úr því undanfarna daga, hver taki við ritstjórastarfinu. Þegar nafn Davíðs kom upp, þá sögðu hatursmenn hans að ef af því yrði þá myndi það marka endalok Morgunblaðsins.

Því er ég algjörlega ósammála.


mbl.is Davíð og Haraldur ritstjórar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nucelar" weapons

Bush og samkvæmt þessari mynd, Sarah Palin, áttu í einhverjum erfiðleikum með að bera fram orðið "kjarnorka" á móðurmáli sínu.

palin-nuclear

Fyrir áratugum síðan lásum við um það í blöðum að kjarnorkuvopnaeign jarðarbúa nægði til að sprengja allt í tætlur á jörðinni mörgum sinnum. Vopnakapphlaupið er skelfilegasta fyrirbærið sem mannskepnan stendur frammi fyrir.

Svo eru menn að fara á límingunum vegna hnattrænnar hlýnunar Errm

 


mbl.is Gegn útbreiðslu kjarnavopna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stofnum glæsileg fyrirtæki!!

"Húsvíkingar gætu notað þriðjunginn, af þeirri orku sem nú er verið að tala um að nýta í álver á Bakka, á næstu tuttugu árum og byggt upp glæsileg fyrirtæki"..

andriAndri Snær er mikill hugsuður, víðsýnn, framsýnn. Hann hefur hlotið viðurkenningar fyrir ritstörf sín og einungis tímaspursmál hvenær hann sópar til sín verðlaunum á sviði viðskipta og atvinnumála.

Sérþekking hans í atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni er einstök, svo einstök að sveitarstjórnarmenn um allt land og áhugafólk sem vill hasla sér völl sem atvinnurekendur í sveitinni, gapir af undrun, klórar sér í kollinum og segir: "Já, auðvitað! Þetta hefur blasað við allan tímann. Þetta "eitthvað annað" er fundið!

Stofnum "glæsileg fyrirtæki!"


mbl.is Byltingarkenndar framkvæmdir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband