Þegar bankahrunið var að verða að hinum nöturlega veruleika fyrir ári síðan, þá var Geir Haarde og fleiri forystumenn Sjálfstæðisflokksins spurðir ítrekað af fjölmiðlamönnum hvort ekki væri rétt að biðja þjóðina afsökunar á orðnum hlut, því þetta gerðist jú á þeirra vakt. Geir sagðist ekki tilbúinn til þess, enda ekki á hreinu hvað hefði í raun gerst. Hann sagðist þó gera það ef niðurstaða rannsókarnefndar Alþingis kæmist að þeirri niðurstöðu að sökin væri hans.
Ekki gengu fjölmiðlamenn eins hart að forystumönnum Samfylkingarinnar, þó banka og fjármál þjóðarinnar væru á þeirra könnu og þrátt fyrir að viðvörunarbjöllur, og þá helst erlendis frá, byrjuðu ekki að gjalla að ráði fyrr en Samfylkingin komst í ríkisstjórn á vormánuðum 2007.
Auðvitað sváfu stjórnmálamenn á verðinum og þeir skulda allir með tölu þjóðinni afsökunarbeiðni, þó "sökin" væri ekki þeirra, en ég tek undir þau sjónarmið að það er betra að vita hverju verið sé að biðjast afsökunar á. Þess vegna er allt í lagi að bíða fram í nóvember þegar skýrsla rannsókarnefndarinnar liggur fyrir.
Margir hneiksluðust á viðbrögðum Geirs og félaga og sögðu þau sýna hroka og siðblindu. Jóhanna Sigurðardóttir skynjaði auðvitað viðbrögð almennings og nú sorrý-ar hún á báðar hendur við þau fáu tækifæri sem hún lætur svo lítið að sýna sig á almannafæri. Um daginn vegna Breiðavíkurmálsins og nú vegna bankahrunsins.
Og allir eru sáttir við Samfylkinguna.. hún kann nefnilega að biðjast afsökunar.
![]() |
Biður þjóðina afsökunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 6.10.2009 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 947075
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Sterkur vilji til að útmá ummerki þjóðfánans
- Bókun 35, hvers vegna nú?
- Bæn dagsins...
- Nýja slagorð trans hreyfingarinnar- verið hrædd við okkur-
- Útlendingastjórnin
- Ultimate Guide to Lookah 510 Thread Vape Batteries
- Enginn vinamissir í Ingibjörgu Sólrúnu
- Klögumálin ganga á víxl og Bandaríkjamenn horfa inn á við
- Skrítin fréttaveröld
- Óverjandi vinnubrögð varin
Nýjustu albúmin
Af mbl.is
Innlent
- Þorgerður farin að finna til þreytu?
- Hans Petersen lokar
- 200 daga bið eftir því að opna bakarí
- Svitnað, sungið og grátið í svetti
- Hulda Elma og Felix fyrst í mark
- Mæður sem þroskastela börnin sín
- Banaslys í Brúará
- Víðáttumikil lægð norðaustur af landinu
- Jarðgöng fyrirhuguð við Barnafoss í Hvítá
- Víðir lét Kristrúnu vita
Athugasemdir
Heiðarlegt og drengilegt af Jóhönnu að biðjast afsökunar fyrir hönd forvera sinna sl. 18 ár og þá fyrst og fremst þeirra þjóðníðinga, Geirs Haarde, Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar.
Andspilling, 6.10.2009 kl. 14:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.