Kjörorðaleit fyrir firðina í Fjarðabyggð

"Þú ert á góðum stað" er og verður kjörorð Fjarðabyggðar.  En nú er að auki óskað eftir tillögum íbúa um kjörorð fyrir firðina í Fjarðabyggð. Kjörorðin verða notuð í kynningarnefni um staðina og einnig geta fyrirtæki og þjónustaðilar á hverjum stað notað þau til að vekja athygli á starfsemi sinni.

 

Kjörorðin gætu verið byggð upp eins og gamalt kjörorð Norðfirðinga: “Norðfjörður, þar sem lognið hlær svo dátt” en það er þó ekki skilyrði. Ef til eru gömul kjörorð sem fólki líkar við er upplagt að senda þau en frumsamin kjörorð eru líka velkomin. Óskað er eftir tillögum fyrir 1. mars nk. fyrir Mjóafjörð, Norðfjörð, Eskifjörð Reyðarfjörð Fáskrúðsfjörð og Stöðvarfjörð.

 

Upplýsingafulltrúi, ferðamálafulltrúi og íbúafulltrúi Fjarðabyggðar hafa tekið að sér að fara yfir tillögur íbúa og gera tillögu til bæjarstjórnar um kjörorð fyrir hvern fjörð um sig.

Vinsamlega sendið tillögur í tölvupósti á netfangið – fjardabyggd@fjardabyggd.is. merkt "Kjörorðaleit " eða á bæjarskrifstofurnar á Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð. Einnig verður tekið við tillögum að kjörorðum á íbúafundunum í janúar og febrúar.

(Af vef  fjardabyggd.is/ )


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

hmmmmmm

Einar Bragi Bragason., 4.2.2008 kl. 00:35

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

nei... það yrði aldrei samþykkt

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.2.2008 kl. 01:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband