Spurning um tíma

Ég snæddi kvölverð með bandarískum verkfræðingi hjá Alcoa og honum þótti miður afstaða samlanda sinna gagnvart þessu samkomulagi en hann sagði jafnframt að það væri bara spurning um tíma, hvenær Bandaríkjamenn skrifuðu undir slíkt samkomlag.

Ég átti mjög fróðlegt spjall við verkfræðinginn en hann hefur starfað fyrir Alcoa víða um heim. Fyrir rúmlega þremur árum síðan, þegar hann sagði vinum sínum heima að hann væri að að fara til starfa á Íslandi, hváðu þeir við og spurðu hvernig í ósköpunum honum dytti í hug að fara til Íslands. Hann sagði þá að hann hefði mikinn áhuga á að byggja upp verksmiðju sem eingöngu notaði "græna orku". Verkfræðingurinn virtist hinn (umhverfis) vænsti maður.

Í sumum þeirra landa sem hann hefur starfað í vegna áliðnaðarins á vegum Alcoa, væri starfsumhverfið vægast sagt brogað. Sumstaðar var Alcoa ekki eignaraðili verksmiðjanna heldur seldi eigendum þeirra tækniþekkingu. m.a. varðandi mengunarvarnir. Hann sagði mér einnig að verið væri að endurræsa aflóga verksmiðjur sem engan veginn uppfylltu nútíma kröfur um mengunarvarnir og þar væru Rússar framarlega í flokki. Í Bandaríkjunum væri ekki lengur möguleiki að reisa nýjar verksmiðjur einfaldlega vegna þess að orkan stæði ekki til boða. Maðurinn er himinnlifandi yfir veru sinni á Íslandi og dáist að landi og þjóð. Alltaf gaman að láta kitla hégómagirnd sína og þurfa ekki einu sinni að spyrja: "How do you like Iceland?".

 


mbl.is Samkomulags ekki vænst á Balí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband