Austfirðingar eru kurteisir

Stundum verða slys hjá farþegum mínum en afar sjaldan samt. Mig minnir að það hafi komið fyrir þrisvar sinnum að ælt hafi verið í bílinn hjá mér á síðustu 30 mánuðum eða svo. Í öll skiptin fannst fólkinu sjálfsagt að borga "ælugjald", enda er atvinnutækið úr leik á meðan bíllinn er þrifinn. En skelfing hlýtur það að vera ömurlegt að lenda í farþegum eins og þessum sem kvenleigubílstjórinn þurfti að þola.
mbl.is Reiddist vegna „ælugjalds"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Gott að vita það

Einar Bragi Bragason., 5.11.2007 kl. 18:26

2 Smámynd: Hákon Unnar Seljan Jóhannsson

Ekki vissi ég af ælugjaldinu einsgott að þú hafir alltaf stoppað þegar maður veikist í ferðum með þér. hahaha en því miður þá hefur það skeð.

Hákon Unnar Seljan Jóhannsson, 5.11.2007 kl. 23:55

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

hehe, já Hákon, ég er svo helv. klíjugjarn að það er eiginlega ekkert gjald nógu hátt þannig að ég reyni að hafa hálft auga á farþeganum ef hann er ræfilslegur

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.11.2007 kl. 00:02

4 Smámynd: Steinar Örn

Væri ekki sniðugt að hafa ælupoka í leigubílum? Þ.e. ef fólk hefði vit á því að æla í þá en ekki í bílinn.

Steinar Örn, 6.11.2007 kl. 16:13

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég held reyndar að fólk hefði ekki vit á því, 

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.11.2007 kl. 16:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband