Furðulegt

Knattspyrnumaður sem hefur misst af öllu undirbúningstímabilinu, fór á sína fyrstu boltaæfingu í 3 mánuði fyrir viku síðan, er í íslenska landsliðinu! Segir það ekki allt sem segja þarf um metnaðarleysi landsliðsþjálfarans? Hvers eiga fullfrískir spilarar að gjalda sem ekki fá tækifæri vegna Eiðs?

Ég hef lengi verið aðdáandi Eiðs Smára Eiður Smári Guðjohnsen.en hann hefur valdið mér vonbrigðum undanfarna mánuði, ekki síst í landsleikjum en í þeim hefur komið berlega í ljós hvers vegna hann kemst ekki í Barcelona liðið. Og svo er hann valinn núna!  Er kannski verið að selja miða út á hann? Er það metnaðurinn?

Ég tók einnig eftir því í landsleiknum á móti Kanada að Jóhannes Karl var gjörsamlega út á þekju og var augljóslega ekki í neinni leikæfingu, en hann er valinn aftur. Að öðru leiti fannst mér ágætur taktur í liðinu í þeim leik og nýliðarnir báru af. Einnig fannst mér vörnin lofa góðu en Árni Gautur á ekki að vera í þessu liði okkar. Það er einfaldlega ekki að virka. Þó hann sýni takta öðru hvoru þá eru of mörg mörg sem hægt er að skrifa á hans reikning. Teljiði saman mörkin sem hann hefur fengið á sig á undaförnum árum. Ég efast um að nokkur íslenskur landsliðsmarkvörður hafi fengi aðra eins súpu af mörkum á sig og hann, ekki einu sinni sá sem var í markinu í 14-2 leiknum.


mbl.is Eiður Smári: Skil ekki umræðu um áhugaleysi og metnaðarleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband