Hugtakið friðsamleg mótmæli hafa fengið alveg nýja merkingu greinilega. Ofbeldi og eignaspjöll hefði ég kallað þetta reyndar. Þingmenn VG nota orðið borgaraleg óhlýðni.
Mörg umhverfissamtök virðast beita óvönduðum meðulum málstað sínum til stuðnings. Það sem þau virðast eiga flest sameiginlegt er að þau beita gjarnan ungum sjálfboðaliðsfótgönguliðum í fremstu víglínu í mótmælaaðgerðum sínum en aðgerðunum er stjórnað af eldra fólki sem tekist hefur að gera sér mótmælahugmyndafræðina að lifibrauði sínu.
þegar ég var á frystitogara í Barentshafi, þá kom skip Greenpeace samtakanna, Rainbow Warrior á svæðið til þess að mótmæla þorskveiðum á svæðinu. Þeir skutu út gúmmíbát til þess að trufla veiðar okkar og sigldu í kjölfar togarans þegar við vorum á togi og stefndu öryggi sínu og lífi í hættu við þær aðgerðir án þess að gera sér nokkra grein fyrir því. Þau sigldu þvers og kruss undir togvíra skipsins. Þetta var í gangi í nokkra daga og um borð í gúmmíbátnum voru yfirleitt 3-4 manneskjur. Einn síðhærður og skeggjaður miðaldra hippi sem var við stjórnvöl gúmmíbátsins og 2-3 stúlkur innan við tvítugt. Eflaust svaka stuð um borð hjá þeim á kvöldvökunum með gítarinn og rauðvínið. Eitt sinn hentu þau poka um borð til okkar og í honum voru piparkökur í laginu eins og fiskar og einhverjir áróðursbæklingar með. Á bæklingunum var ekki gott að sjá hvort væri stærra atriði í þeirra huga, ofveiði á þorski á norðurslóðum eða ómannúðleg aflífun á fiskunum, því í bæklingnum var talað um hve fiskarnir kveldust við það að vera dregnir svona upp á yfirborðið og um borð. M.a. var lýsing á því hve hryllilegt það væri að fiskarnir væru skornir á háls þegar um borð var komið.
PETA eru samtök dýraverndunarsinna og svo virðist sem umhverfis og dýraverndunarsamtök styðji hvert annað. Farið inn á youtube.com og sláið inn í leit þar PETA. Þar kemur margt fróðlegt í ljós.
Málningu slett á ræðisskrifstofu Íslands í Edinborg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Bloggar | 20.7.2007 (breytt 21.7.2007 kl. 16:11) | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 9
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 62
- Frá upphafi: 946014
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 57
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Sigurgeirar á feisinu valda Kenya-mönnum andlegum erfiðleikum
- Einlæg ást og eindrægni!
- Hvers konar borg erum við að fá?
- Öllu lofað, til hægri og vinstri
- Svartir blettir í sögu Samfylkingarinnar
- Öfgar til vinstri kalla á öfga til hægri
- -smáræði-
- Að horfa á snillinga látast í beinni er þyngra en tárum taki
- Bængagsins...Viska fátæks manns..
- Var engin kristnitaka árið 1000?
Nýjustu albúmin
Af mbl.is
Erlent
- Segir að verið sé að svindla á Bandaríkjunum
- Fjórir létust er þyrla flaug utan í sjúkrahús
- Bandaríkjamenn skutu niður eigin herþotu
- Skotið á sama skólann þrisvar á árinu
- Undirritar bráðabirgðafjárlög eftir dramatíska viku
- Barnið sem lést var níu ára gamalt
- Tók þrjár mínútur að drepa fimm og særa 200
- Fimm látnir í Magdeburg
- Árásarmaðurinn sagður vera geðlæknir
- Áfram versnar staða Trudeau
Fólk
- Óvæntar vísbendingar kynda undir sambandsorðróma
- Við vorum grimmdin
- Geggjaðar og gallaðar í senn
- Amma tramma skítaramma
- Aldrei hefði ég ímyndað mér að þetta myndi enda svona
- Meira kynlíf hjá mér
- Aron Can ófeiminn og fór úr að ofan
- 2025 verður mitt ár!
- Eins og tyggjóklessa á sálinni
- Fyrrverandi eiginkonan enn sár
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.