Vinstri Galnir

Kolbrún Halldórsdóttir, þingkona VG, sagði í sjónvarpi í gær að það hefði verið glapræði að einkavæða ríkisbankana og að hún sæi ekki ávinninginn af þeirri breytingu.kolbrun

Þar kvað við kunnuglegan tón hjá Vinstri grænum og skemmt er að minnast ummæla Ögmundar Jónassonar um að rétt væri að fórna þotuliðinu í bönkunum fyrir meiri jöfnuð og félagslegt réttlæti.

En burtséð frá því hvort menn hafi þá pólitísku sannfæringu að ríkið eigi að reka banka eða ekki, þá líta talsmenn VG ítrekað framhjá því hve bankarnir skapa mikil verðmæti fyrir þjóðfélagið - verðmæti sem nýtast til uppbyggingar í velferðarkerfinu. Sem dæmi má nefna að skattgreiðslur bankanna til ríkisins hafa t.d. rúmlega 55-faldast frá árinu 1993. Það ár fékk ríkissjóður um 200 milljónir króna í skattgreiðslur frá bönkunum en í fyrra námu þessar greiðslur 11,3 milljörðum króna, sem munar um minna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafrún Kristjánsdóttir

Hjó einmitt eftir þessum orðum Kolbrúnar.  Alveg hreint furðulegt. 

Hafrún Kristjánsdóttir, 28.4.2007 kl. 14:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband