Mikil reiði er í Fjarðabyggð vegna enn einnar frestunar Norðfjarðargangna. Til að komast í fjórðungssjúkrahúsið á Neskaupsstað þarf að fara yfir 630 m. háan fjallveg og þar eru 600 m. löng einbreið jarðgöng sem í er blindhæð.
Göngin eru barns síns tíma, frá 8. áratug síðustu aldar og voru nokkur ár í framkvæmd. Gárungarnir segja að göngin hafi verið gerð með hamri og meitli.
Staðsetning gangnanna er afar óheppileg í jarðfræðilegu tilliti, en þau liggja í gegnum gígtappa hinnar fornu Reyðarfjarðareldstöðvar. Bergið er því afar laust í sér og stöðugt er að hrynja úr göngunum, eins og sýnt var á mynd á mbl.is í dag.
Fjallvegurinn yfir Oddsskarð er fljótur að lokast í óveðrum en eins og áður segir er sjúkrahús landsfjórðungsins á Norðfirði. Auk þess er risafyrirtæki í sjávarútvegi á staðnum, Síldarvinnslan, en skattgreiðslur þess eina fyrirtækis í ríkissjóð dygðu fyrir kostnaði við gangnagerðina á framkvæmdatíma þeirra.
Myndin af Reyðarfirði, eftir Matts sem fylgir þessari frétt er fjörgömul og miklar breytingar hafa orðið á staðnum eftir að álver Alcoa Fjarðaáls tók til starfa árið 2007. Hér að neðan er nýlegri mynd af þorpinu, en á henni má m.a. sjá knattspyrnuhöllina sem reis í kjölfar framkvæmdanna.
![]() |
Fluttir á sjúkrahús eftir árekstur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.2.): 5
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 44
- Frá upphafi: 946583
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Kristrún ruglar
- Nú skora ég á alla að fara að rækta KARTÖFLUR í sínum heima-görðum:
- Heimatilbúin vandamál í nafni umhverfisverndar
- Uggvænleg áætlun í Ísrael. Abrahamsskjöldurinn
- Þorgerður áttar sig á fullveldinu
- ÞAÐ VIRÐIST EKKI VERA VANÞÖRF Á AÐ FARA VEL YFIR FERIL ÞESSA MÁLS...
- Bæn dagsins...
- Óttinn við Sjálfstæðisflokkinn
- When Donald comes marching home again. Farvel NATO
- Fer ekki á milli mála að ríkisstjórnin vill blóðugt stríð
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.