Ásmundur Páll Hjaltason var í framboði fyrir Biðlistann í Fjarðabyggð í sveitarstjórnarkosningunum árið 2002. Ásmundur Páll var í öðru sæti listans og kom oft inn sem varamaður fyrir Helga Seljan, sjónvarpsmann. Þegar Helgi hvarf á braut á vit frægðarinnar, tók Ásmundur við sem oddviti listans.
Nafn listans var skírskotun í bið Austfirðinga eftir stóriðju og þegar aðstandendur framboðsins tilkynntu um þátttöku sína í kosningaslagnum árið 2002, tóku þeir með táknrænum hætti fyrstu skóflustunguna að álveri á Reyðarfirði og reistu minnisvarða um brottflutta Austfirðinga.
Biðlistinn var skammlífur, því hann kom engum manni inn í kosningunum 2006. Slagorð þeirra var "Hagsmunalisti fólksins", en gráglettni örlaganna hagaði svo til að fólkið vildi ekki flokkinn. Ásmundur lagði mikla áherslu á í kosningabaráttunni 2006, að sveitarstjórnarmál ættu ekki að snúast um tölur og uppgjör, heldur um fólk og þjónustu við það.
Í ljósi þessa, kemur eflaust mörgum á óvart að eindregin stuðningsmaður stóriðju á Austurlandi, skuli hafa gengið í VG, sem hefur alla tíð barist með kjafti og klóm gegn hinu gæfusama framfaraspori, að virkja orku í landsfjórðungnum til atvinnusköpunar í Fjarðabyggð. En þó var það auðvitað ákveðin vísbending um það hvar hann ætti heima í pólitík, að rekstur sveitarfélaga ætti ekki að snúast um afkomutölur.
E.t.v. hefur Ásmundur haldið að hann fengi brautargengi í pólitík, með því að ganga í Vinstri græna. Nú er fullreynt með það.
Formaður svæðisfélags VG hættur í flokknum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 31.1.2011 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 3
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 56
- Frá upphafi: 946008
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 51
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Ranghugmynd dagsins - 20241222
- Vantraust á eigin þingflokk?
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Snjólag í Reykjavík um jól og áramót frá 1921
- Nokkur hundruð milljarðar út um gluggann
- Áfram haukur í utanríkisráðuneytinu
- Níundi áratugurinn leysti vandamál, þeir fyrstu á 21. öldinni bjuggu þau til
- Karlar sem brjóstfæða & pólitískar ofsóknir ...
- Pólitískar vendingar með hækkandi sól
- Ný stjórn, skoðum hana:
Athugasemdir
Þetta er náttúrlega bara útúrsnúningur og þvæla Gunnar. Það er fullt af fólki í V.G. sem hefur stutt virkjanaframkvæmdir, einkum á austur og norðurlandi, það veist þú vel. Svo getur þú nú illa gagnrýnt fólk fyrir að skipta um flokk. Það hefur þú sjálfur gert að minsta kosti einusinni, og reyndar tvisvar ef ég man rétt.
Ómar Sigurðsson, 31.1.2011 kl. 23:24
Ég kaus Alþýðubandalagið milli tvítugs og þrítugs. Svo áttaði ég mig og hef kosið Sjálfstæðisflokkinn síðan.
-
Ég sé engan útúrsnúning hjá mér í þessum pistli...
Gunnar Th. Gunnarsson, 31.1.2011 kl. 23:33
Ef það er "fullt af fólki í VG sem hefur stutt virkjanaframkvæmdir", þá lætur það ekki heyrast á opinberum vettvangi. Hvernig ætli standi á því?
Gunnar Th. Gunnarsson, 31.1.2011 kl. 23:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.