Himnaríki Steingríms Joð

ojKæri Guð !! 
 
Á árinu tókstu frá mér uppáhalds söngvarann minn: Michael Jackson 
Uppáhalds leikarann minn: Patrick Swayze, :
 
Uppáhalds leikkonuna mína:Farrah Fawcett og uppáhalds rithöfundinn minn: Mario Benedetti. ::
 
Mig langaði bara að segja þér að uppáhalds stjórnmálamaðurinn minn er Steingrímur J Sigfússon
 
 
 
Eftir bænastund við rúmgaflinn í gærkvöldi fékk ég svar frá Guði.
 
 
…takk fyrir ábendinguna en Guð vill ekki sjá það að fá Stengrím J Sigfússon til sín, ástæðan fyrir því er að þá kæmi komugjald við Gullnahliðið, virðisaukaskattur á hörpuspilið og eignaskattur á skýinn. Fyrir utan sykurskattinn sem verður lagður á himneska sælu..
 
mbl.is Vanhugsaðar skattabreytingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Næst er bara að prófa að biðja Skrattann um að taka við honum.

Offari, 14.1.2010 kl. 17:54

2 identicon

Það má ekki gleyma því að þetta yrði líka félagslegt vandamál þarna uppi, því Steingrímur myndi ekki þekkja neinn!

Ófeigur (IP-tala skráð) 14.1.2010 kl. 18:00

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Minnir á söguna sem Haraldur Á. Sigurðsson sagði og ég hef síðan staðfært: Ég fékk martröð og dreymdi að ég væri í erfiðri göngu upp að Gullna hliðinu þar sem fordæmdir hröpuðu fram hjá mér veinandi.

Fór að velta fyrir mér hvað ég ætti að segjast hafa gert á jörðinni og í þeim svifum sé ég að Árni Johnsen er á undan mér og er umsvifalaust kippt inn fyrir.

Þegar Pétur spyr mig um gjörðir mínar á jörðinni segi ég að það sé mjög margt, en þó megi tína það til að mig mætti kalla söngvara, svo mikið hefði ég sungið sem skemmtikraftur og inn á plötur.

Þá segir Pétur: Þarna fórstu með það. Söngvarar fá ekki inngöngu í himnaríki.

"Þetta finnst mér nú helvíti hart" segi ég. Ég sá ekki betur en að Árni Johnsen væri að fara inn í rétt í þessu."

"Árni Johnsen!" hrópaði þá Pétur, "hann var nú aldrei neinn söngvari."

Ómar Ragnarsson, 14.1.2010 kl. 19:11

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

 Góður, Ómar

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.1.2010 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband