Færsluflokkur: Íþróttir

Hugsanlega er annað sætið í okkar riðli ekki gott

Ég hef miklar áhyggjur af sóknarleik liðsins hjá nokkrum liðsmönnum. Ég held að sóknarbrot (ruðningur) bara hjá Ágeiri Erni hafi verið 6.

Ég hef ekki trú á því að við vinnum Dani en ef við gerum það þá er eins líklegt að það dugi bara í annað sætið. Ef við töpum lendum við næstum örugglega í þriðja sæti riðilsins. Töluverðar líkur eru á að Þjóðverjar endi í þriðja sæti í sínum riðli sem þýðir að þeir spila við liðið í öðru sæti í okkar riðli. Túnis endar sennilega í öðru sæti á eftir Frökkum.

Ég vil frekar spila við Túnis í 16 liða úrslitum en Þjóðverja. Sérstaklega eftir að þeir misstu sinn besta mann úr keppninni eftir leik þeirra í kvöld.

Er þá ekki bara best að tapa fyrir Dönum og tryggja sér þriðja sætið í riðlinum? FootinMouth


mbl.is Frábær vörn og markvarsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mistök að byrja með Aron Rafn?

Það er alltaf hægt að vera vitur eftir á...

Ólafur Guðmundsson, Hafnfirðingurinn ungi hefur þungan kross að bera. Hann lét reka sig útaf á klaufalegan hátt í stöðunni 19-16 fyrir Ísland og Íslendingar með boltann. Hann fékk þar með rautt og ég furða mig á að hann hafi fengið að spreyta sig nógu mikið í svona mikilvægum leik til að fá þrjár brottvísanir.

Þetta var vendipunkturinn í leiknum  og hinn góði taktur sem kom í upphafi síðari hálfleiks hvarf úr leik okkar manna. Íslenska liðið átti í heild frekar dapran dag og Ásgeir Örn var skelfilega lélegur. Þetta lið á ekki erindi nema í 16 liða úrslit.... því miður.


mbl.is Björgvin valinn bestur í íslenska liðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumt jákvætt en margt áhyggjuefni

Aron Rafn í markinu, Aron Pálmason og innkoma Arnórs Þórs var ánægjuefni í kvöld. Að tapa niður 7 marka forskoti í tveggja marka tap er áhyggjuefni. Sömuleiðis hef ég áhyggjur af Snorra Steini og hreinlega efast um að hann sé í alþjóðlegum klassa þó hann sé mikilvægur og sjálfsagður í landsliðið okkar. Það vantar ógnandi og afgerandi mann á miðjuna og Ásgeir Örn er alltof misjafn. Getur verið glimrandi en einnig skelfilega slappur.

Maður verður bara að vona það besta. Áfram Ísland!


mbl.is Íslendingar lágu fyrir Svíum, 31:29
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mark allra tíma

zladdi Zladdi má eiga það... hann er skítsæmilegur í fótbolta. Hrokafullur eins og Faxi í handboltanum. Mörkin verða ekki mikið magnaðari en þetta. Tveir varnarmenn Englendinga hlaupa strax aftur fyrir markmannin.... en það dugar ekki til.


mbl.is Stórfenglegt mark hjá Zlatan (myndskeið)
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðum góðir eftir 2-3 ár

Eftir að Lars Lagerbeck tók við íslenska liðinu er ég hættur að vera pirraður eftir leiki liðsins, jafnvel eftir tapleiki. Ástæðan er einföld; liðið spilar mun betri fótbolta en áður og þorir að halda boltanum og sækja fram. Leikmennirnir geisla af baráttu og áræðni.

Ég var að spila bridge á netinu í gærkvöldi á BBO.com og fékk makker frá Sviss. Við spjölluðum aðeins um leikinn og sá svissneski sagði að við yrðum með hörkugott lið eftir 2-3 ár. Leikmennirnir væru ungir og mjög efnilegir og það yrði gaman að sjá hverju fram vindur með liðið.

Ég er algjörlega sammála honum.... spennandi tímar framundan. Líkurnar á því að við komumst til Brasilíu eru reyndar sáralitlar eftir tapið gegn Sviss, en það verða fleiri undankeppnir á næstu árum.


mbl.is Vilja meira með þetta lið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland, Frakkland, Spánn og Króatía í undanúrslitin

Íslendingar spila um gullið við Króata, eftir sigur á Spánverjum í undanúrslitum. Króatar vinna Frakka og við töpum fyrir Króötum og höldum silfrinu.

Það þarf ekkert að ræða þetta frekar. Næsta mál.

Ps. Við sigrum Dani í fjögurra liða úrslitum en Frakkar vinna Spánverja.


mbl.is Unnu Frakka og vinna riðilinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getur varla staðist

Þessi áhorfstala stenst varla. Ég var í Bandaríkjunum á meðan riðlakeppnin fór fram og það var sama hvar maður kom... á veitingastaði, hótellobbí og víðar þar sem sjónvörp voru á annað borð (og þau erum mjög víða), þá var stillt á stöðvar með EM útsendingu og fólk horfði af áhuga.

064 (640x427)

Hér erum við konan mín að bíða eftir steikinni okkar á veitingastað í Mall Of America í Minneapolis, stærstu verslunarmiðstöð USA, föðurlandi verslunarmiðstöðvanna. Sama hvert litið var á þessum veitingastað, á öllum veggjum var verið að sýna leik á EM.


mbl.is Aukið áhorf á EM í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottur leikur hjá Íslendingum

Leikurinn við Svía er með þeim betri sem ég hef séð íslenskt landslið spila. Mörkin sem liðið fékk á sig voru þó af ódýrari gerðinn, sérstaklega annað og þriðja markið. Það þriðja má skrifa á Hannes markvörð en hann átti a.m.k. tvær afar vafasamar "hreinsanir" frá markinu.

Íslenskt landslið hefur aldrei verið eins vel mannað og í dag og það sást á spilinu. Liðið hélt boltanum vel og framtíðin er björt hjá okkur.

Ég hef fulla trú á Lasse.


mbl.is Svíar lögðu Íslendinga 3:2
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atkvæðasmölun

"..skráðir iðkendur innan ÍSÍ geti sent inn tilnefningar og greitt atkvæði.“

Á að gera kjör íþróttamanns ársins að skrípaleik? Og hvers vegna íþróttakarl og íþróttakonu ársins? Er íþróttamaður ársins ekki málið?

Ef ÍSÍ vill hafa þessa hluti öðruvísi, þá gera þeir það á sínum forsendum og allt gott með það. Kjör íþróttafréttamanna endurspegla nokkuð vel almenning, þó alltaf séu skiptar skoðanir um valið. Ég vil engu breyta varðandi gamla fyrirkomulagið, utan þess að verðlaunagripurinn sjálfur er hlægilegur þó hann hafi örlítið skánað við minnkunina.

Ég beið alltaf eftir því að lítil og nett fimleikastúlka yrði kjörinn íþróttamaður ársins. Mynd af henni með bikarinn hefði slegið í gegn á alþjóðavísu. Happy


mbl.is Vilja að ÍSÍ standi að kjöri íþróttamanns ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Caruana engist

Ég er að fylgjast með æsispennandi skák 7. stigahæsta skákmanns heims, Fabiano Caruana gegn heimsmeistara kvenna, Yifan Hou. Stelpan er að vinna sýnist mér. Skjá skot af þeim við borðið núna kl 15.36 og staðan við hliðina.

 Ég fæ ekki betur séð en að Yifan sé að vinna mikilvægt peð á miðborðinu.

yifan


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband