Færsluflokkur: Trúmál

Biskup, átta prestar og munkur...

.... gengu inn í kirkju...

Ágætis byrjun á brandara, en þetta gerðist nú samt á sunnudaginn í tilefni 100 ára afmælis Reyðarfjarðarkirkju. Biskupinn predikaði og gengið var til altaris. Hluti af ræðu Biskups er á myndbandinu. Margt athyglisvert sem hann sagði þar.

039

Þarna sjást 6 af prestunum átta fá sér í staupinu. Biskupinn er með kross á bakinu.      Ætli hann sé þungur? Woundering

043

Séra Hólmgrímur á Reyðarfirði var "barþjónninn" og útdeildi messuvíninu.

053

Kaffisamsæti var í safnaðarheilinum að messu lokinni. Kaþólski munkurinn af Kollaleiru, var klæddur sínum brúna kufli að venju.

Maðurinn lengst til hægri er Guðmundur Magnússon, fv. fræðslustjóri á Austurlandi og brottfluttur Reyðfirðingur. Hann gaf kirkjunni frumsaminn og fallegan sálm í tilefni afmælisins, lag og texta, sem við í kirkjukórnum frumfluttum í messunni og endurfluttum í kaffisamsætinu.

Fyrsta erindið af þremur í sálminum hljóðar svo:

Hugljúf er minning um messugjörð,

Í musteri  Drottins við Reyðarfjörð.

Það helgað er heilögum anda.

Og kirkjan mín stattu æ styrkan vörð,

um stefnu frelsarans hér á jörð.

Um aldir mun orð hans standa.


mbl.is Gerendur skaða kirkjuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svipuð aðferð?

slátrun Ef það er rétt sem mér hefur oft verið sagt, að sláturaðferð múslima sé hnífsegg á barka, (eins og þeir gera við suma gísla sem lenda í höndunum á þeim)  þá er það í mínum huga ekkert svipuð aðferð og hnakkaskot.

Hvora aðferðina myndir þú velja fyrir sjálfan þig?


mbl.is Fé slátrað að hætti múslima
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð hatar Ísland!

Það var bent á ÞESSA  síðu í athugasemdarkerfinu hjá mér.  Ég var lengi vel sannfærður um að þetta væri einhver grín- síða, einhverskonar "Baggalútur". 

Því sem þarna er haldið á lofti er svo yfirgengilegt að ég er enn ekki 100 % viss um að þetta sé alvara. Trú og tjáningarfrelsið á sér dökkar hliðar eins og þetta bull sýnir.

logo5

GOD HATES ICELAND!

Norwegian%20flag

The Icelandic Flag mocks the cross by turning it sideways. Satanists mock Jesus by turning a cross upside down. This is very similar. This is proof that Iceland hates Jesus!

  1. They are Godless. Most Icelanders are atheists or worship pagan Viking gods. The few Christians are Lutherans, who are hellbound anyways. There is not a single Baptist church in Iceland!
  2. God cursed this land with geography. Iceland is mostly ice, hence the name "Iceland". There is also a lot of volcanic and geyser activity, due to the close proximity of Hell. We know for a fact that Hell is underneath the Earth, and Iceland is one of the closest places on the surface to Hell. You can look at Iceland as a gateway between Hell and Earth.
  3. God punished their economy by bankrupting them. While they were once successful, the Lord sought to destroy them economically. But do they learn from their punishments? No.
  4. The most famous Icelander is Bjork, who is a disgusting race-mixing harlot who dresses up in strange apparel (Zeph 1:8) and fornicates with negroes (Ezra 9:2). She is a national folk hero.
  5. They elect women as prime ministers even though the Bible specifically forbids women from ruling over men! 1st Timothy 2:12But I suffer not a woman to teach, nor to usurp authority over the man, but to be in silence.
  6. They are weak pacifists and don't have an army. They have universal health care. In other words, it's Obama's utopia.
  7. Iceland wants to destroy the traditional family so they've legalized gay marriage! They create laws to mock God! Leviticus 18:22 Thou shalt not lie with mankind, as with womankind: it is abomination.
  8. Iceland promotes sorcery and witchcraft. They worship Satan and perform rituals that animate trolls and ogres and other demons to do their bidding. They even have a museum dedicated to their Satan worship!
  9. But not even that museum could offend the decency of True Christians™ like the National Penis Museum. Yes, Iceland has erected a building glorifying the penis! What a sick sex-obsessed heathen society.

Svo eru þarna fleir kostulegar greinar, eins og; 5 Reasons why WOMEN should NEVER be on the Internet!


mbl.is Gosvirkni aukist töluvert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munkarnir á Kollaleiru í Reyðarfirði

kollaleira  

Á bænum Kollaleiru, í norðanverðum botni Reyðarfjarðar, búa nú þrír slóvakískir munkar og reka þar munkaklaustur. Á Kollaleiru mannaði áður Guðmundur Beck, bóndi og fyrrverandi varaþingmaður Alþýðubandalagsins.... og álversandstæðingur, veðurstöð Reyðarfjarðar.

Það er spurning hvort áhugasamir um munklífi fái tækifæri til að taka sín fyrstu spor á Kollaleiru.

Munkarnir hafa boðið Alcoafólki upp á gistingu í klaustri sínu, en gestir mega þó ekki koma í klausturálmu hússins. Sameiginleg setustofa með gervihnattasjónvarpi er í húsinu og þar sitja stundum munkarnir og gestir þeirra saman á kvöldin.

Um daginn ók ég starfsmanni Alcoa frá álverinu til Egilsstaða. Starfsmaðurinn er tékknesk kona sem vinnur við rannsóknir í álverinu. Hún byrjaði sem óbreyttur starfsmaður á verksmiðjugólfinu en hún er verkfræðingur að mennt og hafði misst atvinnu sína í faginu hjá verktakafyrirtæki sem fór á hausinn. En nú sem sagt vinnur hún í rannsóknardeildinni og er stundum ræst út á óhefðbundnum tíma og þykir því ágætt að gista hjá munkunum þegar þannig stendur á.

Hún sagði mér frá skondnu atviki sem gerðist kvöld eitt hjá munkunum. Einn þeirra spurði hana hvort hún vildi ekki sitja með þeim í setustofunni og horfa á slóvakíska fræðslumynd um "Hróa Hött" þeirra Slóvaka, en tungumál Tékka og Slóvaka eru lík, líkt og sænska og norska. Konan þáði boðið og sátu þau fjögur, þrír munkar og hún og byrjuðu að horfa á fræðslumyndina. Reyndist þetta þá vera mjög erótísk mynd, sú erótískasta sem konan hafði nokkurn tíma séð í venjulegu sjónvarpi og strax í fyrsta atriði myndarinnar, var "Hrói Höttur" í eldheitum samförum í skógarrjóðri.

Einn munkanna stóð fljótlega upp og gekk út, kafrjóður í framan en hinir tveir sátu sem fastast út alla myndina. Konan sagði að þessi stund hefði verið "súrealísk" og hún átti bágt með að halda niðr´í sér hlátrinum þegar hún gjóaði augunum að munkunum tveim í brúnu kuflunum sínum, undir frygðarstunum frá sjónvarpinu.


mbl.is Viltu prófa að vera munkur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vatn á myllu trúleysingja

jesús Sjálfsagt hlakkar í DoctorE, sem lokað var á hér á Moggablogginu fyrir óviðurkvæmileg skrif um trúmál, við þessa frétt Errm

Ég reikna með að þessu "Guðs-fólki" hafi gengið gott eitt til með þessum barnsránum á Haiti, en skelfing er það afvegaleitt í trú sinni.


mbl.is Treysta guði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlutfallið fer hækkandi

Múslimar eignast að meðaltali mun fleiri börn en aðrir trúarhópar. Auk þess er samkynhneigð bönnuð hjá þeim Joyful Ekki er langt síðan múslimar voru 20% jarðarbúa, en nú eru þeir semsagt 25%.

muslims_do_it_religiously_magnet-p147474190506504690qjy4_400"Over the last six years the Muslim population has grown about two thirds of a percentage point a year faster than the world population. With compounding that means that it would take about 100 years for the Muslim world to double its percentage from 20% to 40%. "  (http://www.geocities.com/richleebruce/b/islam.html )

 


mbl.is Um fjórðungur mannkyns múslímar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérstök tilsögn í klæðaburði

Burka+copy-thumbSkipanir frá yfirvöldum um hvernig fólk skuli klæðast Errm 

Þetta samræmist auðvitað ekki hugmyndum nútímafólks á Vesturlöndum um þá þjóðfélagsgerð sem það vill búa í. Hluti þeirra múslima sem þyggja gestrisni vesturlandabúa, krefjast þess að fá að stjórna öðrum múslimum sem einnig eru búsettir á Vesturlöndum. Nokkrir múslimaleiðtogar, m.a. í Danmörku og Englandi hafa látið hafa eftir sér að takmark þeirra sé að grafa undan vestrænu lýðræði. 

En til þess að þetta megi takst hjá þeim, verða þeir að hafa algjöra stjórn á trúfélögum sínum og að stjórna klæðaburðinum er auðvitað hluti af því. Eignarhald og kúgun á kvenfólki.... strax komin 50% árangur þar.

  burka-sexy

Muslimska "Monroe" útgáfan


mbl.is Gínur beri slæður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Múslimar eru hvergi til friðs

muslim11

school-photograph-cartoon


mbl.is Meira en 140 féllu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talar hann í umboði allra?

Mér hefur skilist að ekki sé öllum illa við Séra Gunnar, á Selfossi. Jafnvel að þeir séu heldur færri en hitt. En þetta er kanski vitleysa í mér Errm

funny_pictures_9591


mbl.is Sóknarbörnum létt í bili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagsmunir og prinsipmál

Prinsipmál geta kostað peninga. Við getum verið þeirrar skoðunnar í hjarta okkar að tiltekin skoðun eða trú sé réttlát og sönn, en þegar stjórnvöld taka opinbera afstöðu til málefnisins, þá getur það haft áhrif á afkomumöguleika þjóðarinnar. Fyrir venjulega fjölskyldu á Íslandi sem berst í bökkum fjárhagslega, getur það skaðað afkomumöguleika hennar ef stjórnvöld taka afstöðu með eða á móti tilteknum málum í öðrum löndum. Um leið og það kostar einstaklinga í þjóðfélaginu peninga, þá kostar það þjóðfélagið peninga. Um leið og það kostar þjóðfélagið peninga, þá skerðir það svigrúm þess til þess að veita félagslega þjónustu.  

Það er helvíti fúlt að vera í þessari aðstöðu.

1


mbl.is Dalai Lama í heimsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband