Færsluflokkur: Spaugilegt

Lexía dagsins

Ég labbaði framhjá sambýli þroskaheftra um daginn. Húsið hafði háa skjólgirðingu umhverfis lóðina og ég heyrði fólk kalla á bak við: "13....13....13...13"

Þar sem skjólveggurinn var of hár til að ég sæi inn í garðinn, ákvað ég að kíkja inn um rifu sem ég sá á honum. Einhver hálfviti stakk þá priki beint í augað á mér!

Svo hrópuðu þeir: "14...14...14...14"

Lexía dagsins: Skiptu þér ekki af því sem þér kemur ekki við. 

 


Ég spurði eineygðan kunningja minn....

glass-eye-102

Ég spurði eineygðan kunningja minn hvort hann setti gleraugað sitt í uppþvottavélina.

Hann sagðist ekki gera það því þá héldu diskarnir að hann treysti þeim ekki.


Clinton-brandarar

Það má finna marga ágæta Clinton-brandara á netinu. Hér koma tveir.

406064_537299849622437_76592559_n

598778_501454773206945_1211330139_n


mbl.is Biður hæstarétt að snúa lögum við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undarlegir menn vekja gjarnan athygli

Kína, N-Kórea, Jemen, Sádi Arabía... ekki leiðum að líkjast Sick

censorship


mbl.is Hugmyndir Ögmundar vekja athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppáhalds uppistandarinn - myndband

Mér finnst gaman að skoða myndskeið á youtube af uppistöndurum. Lengi var Jim Carrey í uppáhaldi hjá mér. Eitt minnisstæðasta atriðið með honum voru eftirhermur .... án orða! Happy Andlit hans breyttist í Jack Nicholson, Clint Eastwood og James Dean. Makalaus andskoti.

Nú er Jimmy Carr hins vegar í uppáhaldi. Jimmy Carr / Jim Carrey, næstum eins Smile


Mile High Club

Náin kynni... í háloftunum? Happy

mile-high-club


mbl.is Lockheedstjóri rekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Berlusconi er kominn til Moskvu

berlusconi-pussy-riot
mbl.is Fresta fyrirtöku áfrýjunar Pussy Riot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besta Gif-myndskeiðið

Þetta er eitthvað svo..... mannlegt Joyful

1


mbl.is Bráðfyndin Gif-myndskeið slá í gegn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bölsýnismaðurinn og bjartsýnismaðurinn

Bjartsýnn og lífsglaður maður hafði ákaflega gaman af skotveiði. Hann ákvað að eignast hund í skotveiðina og sá í dagblaði auglýsingu; "Fullþjálfaður veiðihundur til sölu".

Hann setur sig í samband við eigandann og fær í framhaldinu að skoða hundinn. Eigandi hundsins segir honum að að þetta sé frábær hundur og að hann geti gengið á vatni. Bjartsýni og lífsglaði veiðimaðurinn þurfti ekki að heyra meira og keypti hundinn.

Í framhaldinu býður hann kunningja sínum í stokkandaveiði með sér, en sá var bölsýnismaður af Guðs náð og fann aldrei neitt jákvætt við nokkurn skapaðan hlut. Hann ákveður að segja ekkert um hæfileika hundsins, heldur vildi hann sjá viðbrögð hans.

Næsta morgun bíða þeir við seftjörn austur í Flóa. Andahópur kemur fljúgandi og þeir ná tveimur og bjartsýnismaðurinn sendir hundinn af stað. Hundurinn stekkur út í vatnið, skokkar yfir það og kemur til baka með endurnar. Svona gekk þetta fram eftir morgni. Í hvert sinn sem önd lenti í vatninu skokkaði hundurinn á yfirborðinu og náði í hana.

Bölsýnismaðurinn fylgdist vandlega með þessu en sagði ekki aukatekið orð. Á leiðinni heim spurði bjartsýnismaðurinn:

"Tókstu eftir einhverju óvenjulegu í sambandi við nýja hundinn minn?"

"Já, auðvitað", svaraði bölsýnismaðurinn. "Hann kann ekki að synda".


Ef bæði báðu til Guðs....?

... bað þá Agnes meira? Suðaði hún? "Veldu mig! Veldu mig! Veldu mig!"

19


mbl.is Agnes næsti biskup Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband