Fáum við ekki beina útsendingu?

China-+Handball+Iceland U19 ára landsliðið okkar í handbolta hefur aldeilis sýnt stórkostleg tilþrif á HM. Ef ég man rétt, hefur íslenskt landslið aðeins einu sinni leikið til úrslita á HM, það var U21 í Egyptalandi laust eftir 1990. Í því liði voru Óli Stef, Dagur og Patrekur svo einhverjir séu nefndir. Við töpuðum þeim leik gegn Egyptum, eftir að hafa unnið þá í milliriðli.... ef ég man rétt.
mbl.is ,,Ætlum að fara alla leið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Snæberg Jónsson

Sæll Gunnar.

Eitthvað var íþróttafréttamaður RUV að tala um að í hádeginu að reynt yrði að fá leikinn til sýningar.  Hann er sýndur beint í Túnis, svo þetta er spurning um gervihnattarásir og niðurhal.  Við vonum það besta og það mundi bjarga fjölmiðlum landsins frá algjörri skömm, því umfjöllunin hefur verið í skötulíki!

Ég setti smá athugasemd við frétt á Mbl. í gær og gaf upp tengil hjá IHF þar sem hægt væri að fylgjast með leiknum, þetta var reyndar bara textalýsing, en viðbrögðin komu mér á óvart.  Ég blogga nánast aldrei og er alveg óþekktur í bloggheimum, en ég fékk yfir 370 heimsóknir á bloggið mitt eftir þetta, allir að þakka fyrir og sumir eftir leik að dásama leikinn og þakka mér fyrir að benda á þennan tengil.

Móðir eins landsliðsmannsins hringdi meira að segja í mig!  Þetta sannfærði mig um það að ég er ekki sá eini sem hefur áhuga á að fylgjast með þessu.

Varðandi úrslitaleiki á HM þá er þetta rétt hjá þér, að ég best veit, sem kemur fram hér að ofan.  Við megum hins vegar ekki gleyma U-19 sem urðu Evrópumeistarar fyrir nokkrum árum síðan.  Þá voru menn eins og Ásgeir Örn, Arnór Atla, Andri Stefan, Einar Hólmgeirs og fleiri góðir í liðinu. Því móti var heldur ekkert sinnt af fjölmiðlum.

Sigurður Snæberg Jónsson, 30.7.2009 kl. 15:35

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir þetta Sigurður.

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.7.2009 kl. 19:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband