Síamskötturinn okkar, hann Dúmbó fór í uppskurð í morgunn. Dúmbó er stór og stæðilegur og afskaplega hugaður þriggja ára köttur. Allir kettir í hverfinu hafa verið skíthræddir við hann fram að þessu en rétt fyrir jól byrtist nýr köttur í hverfinu og hann þurfti auðvitað eitthvað að sanna sig fyrir Dúmbó. Hann gerðist meira að segja svo frakkur að koma alveg upp að dyrum í stofuútganginum út í garð, nokkuð sem aðrir kettir hafa ekki þorað. Útkoman úr viðskiptum þeirra var að Dúmbó fékk í fyrsta skipti skrámur á sig. Hann var meira að segja haltur á vinstri framlöppinni í nokkra daga. Ekkert sá þó á honum þar og svo lagaðist hann en byrjaði svo að bólgna upp og varð aftur haltur. Við sáum þá örlítið sár á fætinum og settum á það sótthreinsandi smyrsl. Bólgan hjaðnaði og allt virtist í lagi en svo bólgnaði hann aftur...hjaðnaði...aftur. Um helgina var okkur ekkert farið að lítast á þetta og í morgunn var pantaður tími hjá dýralækninum á Egilsstöðum.
Dúmbó hefur aldrei verið hrifinn af því að fara í bíltúr og í morgunn var engin undantekning á því. Þvílíkt væl í kettinum alla leið upp á Egilsstaði. Og þetta var ekkert venjulegt mjálm! Miklu líkara gráti í hvítvoðungi, stanslaust alla leið. Og svo fór hann hrikalega úr hárum af stressi. Uppfrá var hann svo svæfður til þess að skera í sárið og hreinsa það, heljarinnar skurður og svo var saumað fyrir.. Það gekk vel en næstu 10 daga þarf hann að hafa hálskraga svo sárið fái frið til að gróa. Við kvíðum svolítið fyrir því vegna þess að hingað til hefur hann losað sig við allar hálsólar sem við höfum reynt að setja á hann. Við vonum það besta.
Dúmbó kominn heim og ennþá steinsofandi eftir svæfinguna. Blái liturinn er eftir sótthreinsandi vökva.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.4.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 944625
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- "HÁTT GLYMUR Í TÓMRI TUNNU" - SUMIR ÆTTU AÐ LÝTA SÉR NÆR........
- TÍSKA : Norrænn elegans hjá FILIPPA K. á karlmennina
- Vorboðar
- Heilbrigðisyfirvöld í Noregi herða tökin
- María Sigrún og bakdyr RÚV
- Bæn dagsins...Guð er einn.
- Ísraelska lagið er ekki slæmt í Evrusýnarkeppninni í ár, en ég skil afstöðu með og á móti
- Neiðarlegt ástand
- Fróðlegt gæti verið að sjá svipaða sýn á hugsanleg Eyjagos.
- Snorrabull, strætórugl og bestu ráð í heimi
Nýjustu albúmin
Af mbl.is
Innlent
- Sviðsleikurinn er svolítið mitt
- Eitthvað gerðum við rétt
- Stóri plokkdagurinn haldinn í sjöunda sinn
- Laugavegur hjólaferðamannsins að fæðast
- Stöku skúrir víðast hvar
- Helga fékk undirskriftirnar á núll einni
- Heilt þorp þarf til að ala upp barn
- Uppgötvaðist fyrir algjöra tilviljun
- Er á spilunarlistum allan heim
- Virknin enn ekki sótt í sig veðrið
Erlent
- Handteknir fyrir að starfa fyrir teymi Navalnís
- Liðsmenn hljómsveitar handteknir fyrir nasistaáróður
- Biðla til Bandaríkjamanna að stöðva innrásina
- Weinstein fluttur á sjúkrahús
- Bandarískir ráðamenn efa að Ísrael fylgi lögum
- Hamas birtu myndband af tveimur gíslum
- Þingmaður skotglaður í næturlífinu
- Mona Lisa mögulega í eigið herbergi
- Sóttu harkalega að orkuinnviðum
- Allt að 45 sm hækkun sjávarborðs
Athugasemdir
Baráttukveðjur til Dúmbó!
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 7.1.2008 kl. 21:07
Takk fyrir það!...ég skila því til hans
Gunnar Th. Gunnarsson, 7.1.2008 kl. 21:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.