Guðni Th. misskilur líka

Halda mætti að sagnfræðingurinn Guðni Th. Jóhannesson, sé málpípa Jóhönnu Sigurðardóttur. Guðni Th. segir:

"...höfundum siðferðiskaflans í rannsóknarskýrslu Alþingis fannst að fyrir hrun hefði forsetinn stigið út fyrir verksvið sitt að mörgu leyti og þess vegna lögðu þeir til að forsætisembættið setti sér siðareglur. En Ólafi finnst það vera rakalaus íhlutun.“   (Undirstrikun mín)

Ólafur segir hvergi að tillaga rannsóknarnefndar Alþingis um að forsetaembættið setti sér siðareglur, væri "rakalaus íhlutun". Hann gagnrýndi hins vegar forsætisráherrann og ráðuneyti hennar, fyrir íhlutun sína í málið.

Afhverju segir Guðni Th. ekki frá því að Jóhanna sé með íhlutun sinni, að breyta valdsviði forsætisráðherra með fordæmalausum hætti?

 Guðni Th. Jóhannesson, metsölubókahöfundur, hefur verið gagnrýndur fyrir ónákvæm vinnubrögð, m.a. af Þór Whitehead, sagnfræðingi.

Sú gagnrýni fær staðfestingu með þessu útspili Guðna/Jóhönnu.


mbl.is Allt byggt á misskilningi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðni Th, er sá LANDRÁÐAFYLKINGAMAÐUR og "álitsgjafi", sem RÚV kallar alltaf til þegar eitthvað þarf að "fegra" gjörðir Heilagrar Jóhönnu.....

Jóhann Elíasson, 20.10.2011 kl. 13:05

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, þetta er merkilegt samansafn,´"álitsgjafar" RÚV

Gunnar Th. Gunnarsson, 20.10.2011 kl. 14:58

3 identicon

Já mikið rétt álitsgjafar RÚV eru stórundarlegt samansafn af mönnum.

Örn Ægir (IP-tala skráð) 20.10.2011 kl. 16:40

4 identicon

Gott að sagnfræðingurinn skuli hugleiða  "samstarfsörðugleika" forseta og forsætisráðherra þó ekki hefði sakað ef hann hefði gefið einhver rök fyrir sinni  skoðun.

Það hefði verið fróðlegt að heyra líka álit hans á karakter forsætisráðherrans og samstarfshæfni hennar svona almennt fyrst hann fór á annað borð út í persónulegar karaktergreiningar sem eru trúlega ekki hans sérsvið sem sagnfræðings.

Agla (IP-tala skráð) 20.10.2011 kl. 16:46

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sú "greining" hefði verið áhugaverð.... not

Gunnar Th. Gunnarsson, 20.10.2011 kl. 21:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband