Fluga í kringum ljósaperu

f1-2008-gb-xp-0709Ég hef áhuga á flestum íþróttum en ekki bílaíþróttum. Íslensk torfærukeppni kemst þó næst því að vekja áhuga minn.

Formúla 1 er sjónvarpsefni sem ég eyði ekki tíma mínum í og á reyndar erfitt með að skilja áhuga fólks á að sjá pínulitla frethólka keyra hring eftir hring. Ég get alveg eins horft á flugu fljúga í kring um ljósaperu. Meira að segja hljóðið er það sama.  Errm


mbl.is Hamilton öruggur eftir að keppinautar voru víttir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Af hverju skyldi formúlan vera margfalt vinsælla sjónvarpsefni en t.d. enski fótboltinn? Það sýna ítrekaðar mælingar á áhorfi á íslenskt sjónvarp um margra ára skeið að svo er. Svoleiðis var það alla vega meðan formúlan var sýnd á RÚV. Hef ekki fylgst með mælingum síðan.

Það eru flottar flugur sem fljúga í þínum húsum! 

Annars skal ég síst lasta enska boltann, hann er frábær. Horfi þó meira á þann franska, af eðlilegum ástæðum, búandi í Frakklandi! Og hér eru mörg frábær lið - og margir bestu leikmenn ensku deildarinnar eru jú sóttir hingað . . .

Ágúst Ásgeirsson, 27.9.2009 kl. 18:04

2 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll. Gunnar ég tví klikkaði á myndina upplausnin var ánægjuleg og upplausn góð.

Kv. Sigurjón Vigfússon

Rauða Ljónið, 27.9.2009 kl. 18:34

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ekki neita ég því að formúlan er vinsæl og allt í lagi með það... ég bara skil það ekki

Ágætis mynd, Sigurjón

Gunnar Th. Gunnarsson, 27.9.2009 kl. 19:17

4 Smámynd: Ólafur Gíslason

Það sem ég skil ekki er að maðurinn skuli vera að keppa eftir að hann varð heimsmeistari með svindli....

Ólafur Gíslason, 27.9.2009 kl. 21:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband