Lítil mótspyrna

sexy12Ég skellti mér á stelpurnar okkar í dag. Síðasti skóladagurinn í þessari staðlotu var búinn í fyrra fallinu og veðrið frábært og vel fallið til þess að góna á ungar stelpur elta bolta. 

Ser-píurnar voru einhverjum klössum lakari en stelpurnar okkar, það var nokkuð ljóst strax í upphafi. Meira að segja upphafsspyrnan hjá þeim var ólögleg og þær þurftu því að tvítaka byrjunina, nokkuð sem ég amn ekki eftir að hafa séð áður í fótboltaleik. Spyrnugeta þeirra var heldur ekki upp á marga fiska því þegar þær áttu útspark þá skapaðist oft stórhætta við markið hjá þeim.

En flottur leikur hjá okkar stelpum því það getur verið erfitt að spila gegn liðum sem pakka í vörn. Auk þess er ekki ólíklegt að stelpurnar okkar hafi haft EM örlítið á bak við eyrað, m.t.t. meiðsla og slíks.

P.s. myndin er ekki tekin á leiknum í dag.


mbl.is Margrét Lára sá um Serbana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Ég treysti mér ekki til að skella mér á stelpurnar "okkar" í dag. En þetta var góður leikur hjá þeim og gott að við Íslendingar getum verið stoltir af einhverju eftir að Útrásarvíkingarnir reyndust verið tálsýn ein. Verður gaman að fylgjast með þeim á EM.

Guðmundur St Ragnarsson, 16.8.2009 kl. 02:18

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sammála, Guðmundur

Gunnar Th. Gunnarsson, 16.8.2009 kl. 03:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband