Hart í ári hjá alfriðunarsinnum

Að vera á móti allri uppbyggingu í orkuiðnaðinum á Íslandi, er svo voðalega 2007 eitthvað. Nú eru aðrir tímar og fyrirsjáanlegt að bulláróður fær ekki eins mikinn hljómgrunn og þá.

energy-crisis-2 Vindmyllur þykja umhverfisvænar en eiga sér þó hatramma andstæðinga víða. Þær eiga auðvitað ekki allsstaðar við, því mikil sjónmengun er af þeim. En það er merkilegt að þessi tækni skuli ekki notuð í einhverjum mæli á vindskerinu okkar. Sennilega er það vegna þess að hagkvæmara er að nota vatns og jarðvarmaorkuna.


mbl.is Vill efla samstarf og rannsóknir á jarðhita
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

'Eg held að þú ættir ekki að tala mikið um bull, það stendur yfirleitt bullstrókurinn fram úr þér...

HStef (IP-tala skráð) 23.7.2009 kl. 17:49

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir málefnalegt innlegg ... eða þannig

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.7.2009 kl. 18:03

3 identicon

Sæll Gunnar, ég ætla að fá að leggja smá bull  í bullustrókinn.

Við lítinn bæ í Bretlandi sem heitir Broadstairs, skammt frá Dover er verið að reisa svokallaðan vindfarm, sem samanstendur af 172 vindmillum eitthvað um 6. sjómílur út í sjó. Þegar verkefninu verður lokið munu þær framleiða um 630 megawött. Ég var þarna í vor og sá rörin sem þeir voru að flytja út í sjó, þar sem þeir lemja þau niður í botninn.  Ég held þau hafi verið eitthvað um 4m í þvermál og veggþykktin var eitthvað á milli 60 til 80 mm. Þau eru eitthvað um 40m löng og eiga að vera undirstöður fyrir vindmillurnar.

kveðja Rafn.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 23.7.2009 kl. 18:50

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta er athyglisvert Rafn. Þetta mætti vel gera hér og setja inn á landsnetið. Vandamálið við vindrafstöðvar er að erfitt er að tryggja orkuafhendingu í logni, en það er samt sjaldan logn á landinu bláa... öllu í einu. 

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.7.2009 kl. 18:55

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég kann því afar illa þegar menn kalla vindrafstöðvar vindmyllur. Myllur mala korn.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.7.2009 kl. 21:20

6 identicon

Alveg rétt hjá þér. Auðvitað eru þetta vindrafstöðvar.

kveðja Rafn.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 23.7.2009 kl. 21:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband