Frábært veður um helgina

Veðrið um helgina hér eystra, var einstaklega fallegt, en nú er útlit fyrir að sú dýrð sé á enda. Ég fór til Egilsstaða í gær og greinilegt var að snjósleðamönnum leiðist ekki færið sem nú býðst. Ég keyrði samsíða einum á leiðinni til baka yfir Fagradalinn og mældi hann á 95 km. hraða þegar myndin er tekin.

007

Augnabliki eftir að myndin er tekin, leit snjósleðamaðurinn á mig og gaf þá allt í botn. Sleðinn þaut framúr mér og ég giska á að augnabliki síðar hafi hann verið kominn á um 120 km. hraða.

008

Nokkrum sekúndum síðar..... farinn

018

Þegar ég kom niður að Grænifelli, innst í Reyðarfirði, mætti ég 7-8 vélsleðamönnum á þeysireið á leiðinni upp á Fagradal. Þarna sést glitta í tvo þeirra vinstramegin.

 


mbl.is Varað við stormi á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Ég veifaði þér Gunnar....

Eiður Ragnarsson, 5.3.2009 kl. 00:14

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ok

Björgvin Pálsson er sá sem er á fyrstu myndunum, hann sagði mér það í gær. Hann sagði mér að hraðamælirinn hjá sér hefði sýnt 150 km/klst þegar hann spýtti fram úr mér. Eins gott að löggan var ekki að mæla

Gunnar Th. Gunnarsson, 5.3.2009 kl. 03:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband