Táknrænt?

Þessar bætur eru náttúrulega hvorki fugl né fiskur og eiga sennilega að vera táknrænn vottur yfirvalda um að biðja þessa menn afsökunar. Hve háar bæturnar hefðu átt að vera, er auðvitað erfitt að segja, en tæp miljón á haus er lítið.

Ef ég skil þessa frétt rétt, þá verður þessu ekki deilt jafnt niður á þessa 100 einstaklinga, heldur hver og einn metinn. Hvernig verður það mat? Fá þeir mest sem setið hafa lengst í fangelsi? Hafa farið oftast í meðferð?

Það mætti spara matið og deila þessu bara jafnt yfir hópinn. Einhverjir lentu ekki í neinni óreglu, en hafa samt markerast fyrir lífstíð af veru sinni í Breiðuvík. Þeir bera harm sinn í hljóði, en eiga þeir þá ekki rétt á neinum bótum?


mbl.is Bótafjárhæðin vonbrigði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband