Halda hlífisskyldi yfir fulltrúa VG

Fulltrúa VG er falið af foreldrum stúlkunnar að koma þessu bréfi áleiðis og það er auðvitað bara klaufaskapur og ekkert annað af VG manninum að eyða ekki nafni stúlkunnar út. En ég velti því fyrir mér hvort foreldrar stúlkunnar hefðu hlíft Sjálfstæðismanni fyrir samskonar mistök.

Það er veruleg skítalykt af þessu máli, eins og glögglega má lesa HÉR


mbl.is Álasa ekki Þorleifi fyrir bréfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ætli sé ekki best, Gunnar Th., að þú þefir af eigin buxnarassi áður en þú ferð að hnusa í aðrar áttir efir skítalykt?

Jóhannes Ragnarsson, 14.12.2008 kl. 21:53

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég var svo sem ekkert að þefa sérstaklega. Þessari brælu sló bara fyrir

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.12.2008 kl. 22:27

3 identicon

Eins og mér finnst þú oft málefnalegur og rökfastur Gunnar, þá er ég alveg steinhissa á þér að falla í það að nýta þér þessi  smámistök borgarfulltrúans Þ.G. sem samt er þarna augljóslega að berjast gegn órétti og fyrr meiri skilningi og réttlæti til handa einstaklingi sem á mjög undir högg að sækja í þjóðfélaginu !

Fólk sér fljótlega í gegnum svona skítlegar vandlætingar !

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 22:35

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég er einmitt EKKI að nýta mér mistökin, ég segi að þau sé bara mistök. Lestu krækjuna sem ég vísa í.

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.12.2008 kl. 23:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband