Gullegg

Alcan í Straumsvík. Þeir sem hafa það að aðaláhugamáli að vera á móti stóriðju ættu kannski að hugsa sinn gang þegar þeir sjá þessar tölur. Og þetta er ekki allt, því afleidd störf eru ekki inni í þessum útreikningum.

Fyrirtækin, sem greiða hæstu gjöld í Reykjanesumdæmi eru þessi:

  1. Alcan á Íslandi 1.456.634.761 króna
  2. Grindavíkurkaupstaður 406.022.344 krónur
  3. Reykjanesbær  376.449.843 krónur
  4. Kópavogsbær 305.029.461 krónur
  5. Hafnarfjarðarkaupstaður 281.296.533 krónur
  6. Sandgerðisbær 253.386.207 krónur
  7. Sveitarfélagið Garður 232.944.548 krónur
  8. Þorbjörn 228.550.580
  9. Hitaveita Suðurnesja 226.840.007 krónur
  10. Íslenskir aðalverktakar 173.083.271 króna
  11. Nesbyggð 162.325.147 krónur
  12. Nesfiskur 149.264.892 krónur
  13. Sveitarfélagið Vogar 146.034.006 krónur
  14. Norvik 145.443.930 krónur
  15. N1 144.670.872 krónur
  16. Byko 139.902.711 krónur
  17. Flugfélagið Atlanta 135.880.316 krónur
  18. Marel Food Systems  134.680.322 krónur
  19. Samkaup  127.667.564 krónur
  20. Stálskip 108.313.570 krónur
  21. Flugþjónustan Keflavíkurflugvelli,  105.593.837 krónur
  22. Garðabær 101.984.794 krónur.

mbl.is Alcan greiðir mest fyrirtækja á Reykjanesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Ríkarður Jóelsson

Ég myndi kalla þetta skárra en ekkert frekar en gullegg. Ég er svo sem ekki með heildarmyndina á 100% tæru en ég bara sé ekki að þessi iðnaður sé að greiða fyrir framkvæmdir í kringum hann á eðliegum hraða og það er kannski ekki markmiðið í sjálfu sér.

Ég hef það ekki að sérstöku áhugamáli að vera á móti stóriðju og sennilega er eðlilegra að líta á þennan iðnað sem kjölfestu atvinnugrein frekar en gróðakistu.

Við værum sjálfsagt verr stödd án þessa en værum við verr stödd með annan iðnað í bland eða í öðrum hlutföllum? Það er bara erfitt að svara því, maður er bara ánægður að hafa eitthvað á milli handann þessa dagana svo ég kýs að lýta þetta jákvæðum augum, í það minnsta það sem komið er.

(afsakið stafsetningu og málfræði flökt, ég er bara nokkkuð blindur á þessháttar)

Sveinn Ríkarður Jóelsson, 31.10.2008 kl. 11:25

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Alveg rétt Sveinn, þetta er kjölfestuatvinnugrein og annar iðnaður hefur tilhneigingu til að blómstra í kjölfestunni.

Gunnar Th. Gunnarsson, 31.10.2008 kl. 11:29

3 Smámynd: H G

Takk fyrir að hleypa nafnleysinga inn! Svo Alcan borgaði 1,456  milljarð ísl. króna, um 12 milljónir Bandaríkjadala, í opinber gjöld ! -  Í  annarri frétt Mbl. í morgun kemur fram að Reykjavíkur-borg hafi á sama tíma greitt 4,5 (eða voru það 5,4?) milljarða ísl króna í opinber gjöld - sem er 3 (eða 4)x meira. Hvað sanna þessar fréttir?

Ég er ekki, né hef verið, á móti álbræðslu í Straumsvík. Bið aðeins um að lát verði á áliðju-maníunni.  það er kannski til of mikils mælst, því Íslendingar þurfa yfirleitt að gera allt svo hressilega,  m. a.  fara hressilegar á hausinn en flestallir aðrir 

H G, 31.10.2008 kl. 14:39

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég banna engum að gera athugasemdir hér ef þeir eru kurteisir.

Þjóðin skiptist í fylkingar, með og á móti stóriðju og virkjunum. "Virkjanasinnar" nota efnahags og atvinnuleg sjónarmið, auk byggðasjónarmiða í röksemdum sínum fyir stóriðjunni. Umhverfissinnar nota eðli sínu samkvæmt, umhverfissjónarmið í rökstuðningi sínum. En svo þegar það dugar ekki til að fá nógu marga í lið með sér, þá fara þeir að beita efnahags og atvinnusjónarmiðum líka, þ.e. að ávinningurinn af svona starfsemi sé lítill sem enginn. En þá förlast þeim flugið, því þessir aðilar hafa ítrekað verið staðnir að því að ljúga að almenningi í þeim efnum og reyndar í náttúrufræðilegum efnum líka, eins og bullið í sambandi við Kárahnjúka sannar og vitna í sérvalda sérfræðinga: Dýrastofnar áttu að vera í hættu... Hreindýrin, gæsirnar, lóurnar og spóarnir, selirnir og fiskistofnarnir. Auk þess hafa þessir aðilar með hjálp "sérfræðinga" fullyrt að ferðamannaiðnaðurinn beri stórskaða af framkvæmdunum eystra, s.b. skýrslu Landverndar frá árinu 2002, þar sem segir að ferðamönnum muni fækka um 50% á Austurlandi með tilkomu Kárahnjúkavirkjunar og 30% á landinu öllu.  

Þegar komið er með svona fullyrðingar og vitnað í "sérfræðinga", þá er ekki skrítið að almenningur staldri við og verði ráðviltur.

Gunnar Th. Gunnarsson, 31.10.2008 kl. 16:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband