Á næstu dögum ætla ég að setja hér inn nokkrar myndir frá ferðalagi fjölskyldunnar til Porec í Króatíu dagana 13.-27. júlí.
Við vorum á íbúðarhóteli sem var staðsett rétt við móður-hótelið, Hotel Diamant. Fín 3gja herbergja íbúð með góðri loftkælingu. Hótelin eru 3 þarna; Diamant, Cristal og Rubin og við gátum nýtt okkur þá þjónustu sem þau höfðu upp á að bjóða en við vorum eingöngu á Diamant, enda var það næst okkur og flottast. Góður sundlaugagarður, bæði úti og innilaug og flott "wellness center".
Um 15 mín. gangur er niður í gamla bæinn í Porec sem er 15 þús. manna bær á Istria-skaganum. 700 þús. ferðamenn koma til bæjarins á sumrin svo þar eru væntanlega 100-150 þús manns yfir sumarmánuðina. Þjóðverjar, Austurríkismenn og Ítalir eru fjölmennastir þarna en einnig mátti sjá töluvert af Hollendingum og Dönum. Það vakti athygli mína að þeldökkt fólk og Asíubúar sáust ekki þarna og ekki heldur múslimar sem hægt var að þekkja af klæðaburði.
Skaginn liggur nyrst við Adríahafið og er á stærð við Reykjanes. Ótrúlega mörg þorp eru á skaganum, flest lítil, m.a. minnsti bær í heimi samkvæmt heimsmetabók Guinness en hann heitir Hum, með 17 skráða íbúa. Við heimsóttum bæinn þegar við tókum bílaleigubíl í 2 daga. Um 160 þús. íbúar eru á Istria-skaganum og um 5 miljónir í landinu öllu. Stærsti bærinn er Pula með um 60 þús. íbúa.
Á myndinni hér að ofan er lítill turn sem er hluti af borgarmúr sem byggður var á dögum Rómaveldis, kringum árið 500. Í dag er ekkert eftir af múrnum nema tveir svona turnar og í þeim eru afar sérstakir veitingastaðir.
Úti að borða í gamlabænum í Porec. Eyrún tekur spaugi litla bróðurs, Jökuls, með stóískri ró
Gamli bærinn er frábær í Porec með húsum og þröngum götum sem langflest eru mörg hundruð ára gömul og þau allra elstu yfir þúsund ára gömul. Verðlag er þarna heldur lægra en á Íslandi en hefur þó hækkað mikið hin allra síðustu ár. Króatar hafa óskað eftir inngöngu í Evrópusambandið svo brátt mun gjaldmiðill þeirra, Kuna, líða undir lok og Evran taka við. Þá má búast við að verðlag hækki en frekar.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.5.): 0
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 107
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 87
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Siðleysi á Íslandi
- Enn sjást atriði í nýju ljósi varðandi upphaf Seinni heimsstyrjaldarinnar.
- Al Gore segir að heimsskautin hafi bráðnað að fullu árið 2014
- Meðvirkni er núna ofnotað hugtak
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkraínu. Þ.s. Úkraína var með engin varnarvígi þar, var ekki erfitt að taka ræmuna. Er þetta allt og sumt sem Rússar ætla sér þarna?
- Æviágrip Snorra Sturlusonar
- Utanríkisráðuneytið í forsetaham
- Norska reynslan: Rafmagnsbílar þýða ekki minni eldsneytisnotkun
- Vér fórnarlömb samsæris ... og barnastrætó
- Standið við stóru orðin.
Nýjustu albúmin
Af mbl.is
Innlent
- Höfum við ekki bara öll verið að djamma?
- Áforma 450 íbúðir við Kringluna
- Hvetja fólk til að velja heilbrigðari kosti
- Sigmundur um kynhlutlausa málfræði: Þetta er bull
- Mál læknis í rúmt ár á borði saksóknara
- Bíll stóð í ljósum logum á Sæbraut
- Óttast brottfall í stétt hjúkrunarfræðinga
- Vegagerðin á eftir áætlun en borgin klárar fyrr
- Aldrei spurður út í umhverfismál
- Þyrlan sótti veikan sjómann
Fólk
- 61 árs gömul piparmey leitar að ástinni
- Segja Spacey eiga skilið að snúa aftur til Hollywood
- Laufey með tónleika í Royal Albert Hall
- Helgi Björns: Þetta verður eintóm gleði
- Ljósbrot fékk áhorfendur til að rísa úr sætum
- Nýja kærastan sögð skuggalega lík fyrrverandi eiginkonunni
- Eiginkonan rak upp stór augu
- Saknaðarilmur hlýtur 8 Grímutilnefningar
- Streep hlaut heiðurspálmann á opnunarkvöldi Cannes
- Bergur Þór er nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.