Þrjár gamlar konur

Þrjár gamlar konur sátu á bekk í góða veðrinu fyrir utan elliheimilið. Gamall maður gengur hjá og ein kerlinganna kallar til hans og segir, "Við skulum veðja við þig að við getum giskað á hve gamall þú ert!"

Sá gamli sagði, "Það er ekki nokkur leið fyrir ykkur að giska á það, þið gömlu flón".

Þá sagði ein kvennanna, "Víst getum við það! Girtu bara niðrum þig og þá getum við sagt nákvæmlega hvað þú ert gamall".

Karlinn varð hálf vandræðalegur en forvitni hans var vakin um hvort þær gætu þetta virkilega, svo hann girti niðrum sig og stóð fyrir framan þær með sprellann úti. 

Konurnar sögðu þá manninum að snúa sér í hring og hoppa svo nokkrum sinnum. Þegar karlinn hafði gert þetta þá horfðu konurnar á hann dágóða stund og sögðu svo, "Þú ert 87 ára".

Sá gamli varð steinhissa og spurði hvernig í fjáranum þær sæju það.

Kerlingarnar skríktu úr hlátri og sögðu, "Við vorum í afmælinu þínu í gær".

forn676l

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

  Það er kannski betra að vita hverjir komu í afmælið!

Jóhann Elíasson, 17.4.2008 kl. 21:32

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

  Karlgreyið.

Anna Einarsdóttir, 17.4.2008 kl. 23:22

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Köld eru kvennaráð

Gunnar Th. Gunnarsson, 18.4.2008 kl. 02:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband