Ræs mellur! Skip!

Norski togarinn á hafnarkantinum í Neskaupstað. Þessi gamli frasi á við mig í kvöld, í óeiginlegri merkingu. Ég ætlaði að taka mér frí frá leigubílaakstri í kvöld og setja í aðra tánna með kennurum og starfsliði Grunnskóla Reyðarfjarðar í kvöld. En nú streyma skipin í land vegna óveðursins og áhafnirnar verða að fá þjónustu.

Pöbbinn á Reyðarfirði hefur nú verið lokaður um nokkurt skeið og opnar sennilega ekki aftur fyrr en eftir 2-3 vikur vegna breytinga. Ekki er ólíklegt að sjómennirnir vilji kíkja út á meðal fólks og þá er næsti pöbb á Eskifirðí, í 15 km. fjarlægð. Ég vona bara að verktakar á vegum Vegagerðarinnar hafi sandað leiðina vel fyrir kvöldið.


mbl.is Togari sigldi á land í Neskaupstað
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

hehe... ég er ekkert að kalla þessar elskur neitt. Enda veit ég ekkert um þær á Nesk.

Gunnar Th. Gunnarsson, 8.2.2008 kl. 18:50

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Fyrir þá sjómenn sem hugsa sér til hreyfings á Mið-Austurlandi, þá er númerið hjá mér 844-9133

Gunnar Th. Gunnarsson, 8.2.2008 kl. 18:56

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég held að ritstjórar Moggablogsins séu alveg að missa það! Vegna fyrirsagnar þessarar færslu þá hefur tengingin við fréttina verið rofin! Einhverjir hafa kvartað yfir þessum landsfræga frasa sem gengið hefur manna á milli í gríni í áratugi. Þetta er efni í færslu.

Gunnar Th. Gunnarsson, 9.2.2008 kl. 04:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband