Árshátíðarmyndband Samfó og VG

Svo virðist sem nær eingöngu vinstri menn hafi haft gaman af Skaupinu. Er það eðlilegt í sameiginlegu sjónvarpi allra landsmanna?

Eitt er að hafa pólitíska slagsíðu á sjónvarpsefni sem á að vera fyndið. Annað að það skuli vera gjörsamlega húmorslaust.

Það er mannréttindabrot að skylda alla landsmenn til að borga fyrir þetta.

IMG_7077

Brennan á Reyðarfirði

Gleðilegt ár kæru félagar og vinir. Við skulum ganga bjartsýn inn í nýtt ár.


mbl.is Árið endursagt án gríns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Gleðilegt árið Gunnar.

Þrátt fyrir að hafa af nægu efni að taka, hafi skaupið átt að vera pólitískt, tókst höfundum þess að klúðra því svo gersamlega að ekki eitt einasta atriði kallaði fram bros, hvað þá hlátur.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.1.2015 kl. 01:54

2 Smámynd: Rafn Guðmundsson

er ekki 'Ímyndunaraflið'  ekki að rugla þig - skaupið var bara ágætt

Rafn Guðmundsson, 1.1.2015 kl. 03:51

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég held að Björt framtíð og Píratar séu ekki jafn einsleitir. Þeir hlæja ekki eins grimmt eftir flokkslínum.

Annars er þetta akkúrat fylgi Samfylkingarinnar og Vinstri grænna, plús eitthvert lausafylgi sem finnst þetta gott Skaup, samkv. könnun á Vísi.is.

Þegar ég segi lausafylgi á ég við ráðvillta og húmorslausa einstaklinga sem auðvitað finnast í öllum flokkum. Það sem ræður afstöðu þeirra og smekk á Skaupinu, er félagsskapurinn sem það er í hverju sinni.

Gunnar Th. Gunnarsson, 1.1.2015 kl. 06:56

4 identicon

Já já þeir sem höfðu gaman af þessu eru húmorslausir, þú væntanlega þekkir alla landsmenn og þeirra hugrenningar. Þetta var bara gott skaup og djarft. Frábært að allir landsmenn hafi séð hversu fáránlegt alþingi er.

Hans (IP-tala skráð) 1.1.2015 kl. 12:42

5 identicon

Hans, það er ekki tilgangurinn með skaupinu, að vera djarft og að vera pólitískt áróðursmyndaband.

Það er gert til að hafa gaman að og það er það seinasta sem hægt er að segja um þetta skaup.

Halldór (IP-tala skráð) 1.1.2015 kl. 12:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband