Skrítin "frétt"

Lítum á þróun álverðs, undanfarna daga, vikur, mánuði og ár. Efsta myndin er álverð sl. þriggja ára, svo kemur sl. 6 mánaða og að lokum síðustu 15 daga.

3 ár

6 mán

15 dagar

Ég sé ekki að þessi þróun sé tilefni fréttarinnar. Reyndar hefur álverð farið hækkandi síðustu daga, en búast má við frekari lækkunum á hrávörumarkaði, ef spádómar um frekari kreppu rætast á næstunni.

Landsvirkjun gerir orkusölusamninga við álfyrirtækin, tengda heimsmarkaðsverði á áli en einnig einhverju meðaltalsverði á rafmagni í heiminum. Slíkt fyrirkomulag minnkar áhættu LV en tíminn einn mun leiða í ljós, hvor leiðin er hagkvæmari.


mbl.is Verð á áli lækkar hratt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sæll félagi,

Það kemur nú svo margt skrítið úr kýrhausnum moggans að það væri að æra óstöðugann að elta það allt uppi;)  Oft eru fréttamiðlar á Íslandi dögum, vikum og stundum mánuðum á eftir með "nýjar" fréttir.  Man ekki hvað ég rakst á fyrir ca 3 vikum síðan sem var sagt frá eins og nýju neti en kom upp úr dúrnum að hafi skeð í Júlí;) 

Álverð hefur verið tiltölulega hátt undanfarið.  Ég skoðaði þróunina síðan 1989 (infomine hefur ekki gögn lengra aftur) og verðið núna er svipað og það var í kringum 1990.  Frá 1990 - 2005 var það lægra en það er nú og eins 2008-2010. 

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 10.10.2011 kl. 18:04

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sæll, Arnór.

Já, ég held að álkaupmenn geti verið nokkuð sáttir í dag. Þegar samningar voru gerðir við Fjarðaál (Alcoa) árið 2003 var álverð í kringum 1.400$ á tonnið. Núna er það 2.170$.

Gunnar Th. Gunnarsson, 10.10.2011 kl. 21:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband