Canon EOS 550D

Ljósmyndaáhuginn er að vakna úr dvala hjá mér. Ég er löngu hættur að nota ágæta reflex vél sem ég hef átt í 35 ár. Það er einfaldlega of dýrt að framkalla filmur. Errm

Þetta er draumagripurinn sem ég mun kaupa á næstunni, sjá hér  28_EC2851_None_6


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Munurinn á 550 (T2i) vélinni og 500 (T1i) er mjög lítill. Ef þú kaupir hana erlendis, t.d. í USA er verðmunurinn ekki nema $50 (5.850,- kr) en hér heima er hann hins vegar tæp 30.000,- kr.

Ég keypti mér 500 vélina í sumar, frá Canada. Þá var verðmunurinn tæpir 200 C$ og þótti mér hann allt of mikill miðað við mismun vélanna.

Allur þessi verðmunur miðast við Body + standard linsu. Sú linsa er hins vegar frekar takmörkuð og því er nú komið á tíu ára áætlunina hjá mér að fá aðra betri.

Vélin er frábær!

Gunnar Heiðarsson, 13.3.2011 kl. 09:58

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég held að munurinn liggi í videogæðunum. Í þessari vél er mjög fullkomin videogæði, bæði í hljóð og mynd.... skilst mér.

-

Þessi vél fær afburðardóma í fagtímaritum.

Gunnar Th. Gunnarsson, 13.3.2011 kl. 12:02

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Linsan sem ég ætla að byrja með er 18-55 mm. 300 mm. linsan bíður betri tíma.

Gunnar Th. Gunnarsson, 13.3.2011 kl. 12:03

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég keypti mér Canon AE-1 1979 og hef tekið ófáar myndirnar á þá ágætu vél. Ég átti með henni auk standard 50mm linsunar aðra sem var 70-210mm. Frábær vél, en filmu- og framköllunarkostnaðurinn hélt aftur af manni við myndatökur.

Ég keypti mér svo árið 2007  Canon EOS 400D  með 18-55mm og 90-300mm linsum. Þessi vél hefur svo sannarlega toppað þær vonir sem ég batt við hana. Ég legg ekkert upp úr vídeó möguleikum myndavéla, myndatakan á hug minn allan. Ég hef aðra vél í vídeótökur, líka Canon að sjálfsögðu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 14.3.2011 kl. 19:03

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir þetta Axel. Þar sem ég á ekki videovél, þá finnst mér sá fidus á 550 vélinni áhugaverður.

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.3.2011 kl. 22:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband