Að þekkja sinn vitjunartíma

"Minn tími mun koma!", sagði Jóhanna, og hún hafði rétt fyrir sér. Þ.e.a.s. hennar persónulegi tími kom sem formaður síns flokks og forsætisráðherra.

jóhanna"Hennar tíma" verður þó ekki minnst fyrir eftirtektaverða stjórnunarhæfileika eða útsjónarsemi í erfiðum úrlausnarefnum. Þvert á móti einkennir fát, öryggisleysi og mannafælni öll hennar viðbrögð, frá því "hennar tími kom". Hvað mun þá standa á pólitískum legsteini Jóhönnu? "Kona og lesbía" ...? Woundering

Ekki vantaði yfirlýsingagleðina og slagorðin hjá ríkisstjórnarflokkunum fyrir síðustu kosningar. Einhvernveginn finnst mér það sárara, þegar orð fólks sem gefur sig sérstaklega út fyrir að vera sverð og skjöldur hins svokallaða lítilmagna, reynast lítils virði. Það er eitthvað svo ... "extra something". Errm

Tími Jóhönnu var eins og neyðarblys á lofti (kannski í víðtækri merkingu þess orðs); hann var bjartur og náði skjótt mikilli hæð, en hrapaði svo með týruna hraðdofnandi. Tími Jóhönnu er liðinn. Meira að segja flestum flokksmönnum hennar er það ljóst.


mbl.is Jóhanna: sit út kjörtímabilið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Tími hennar kom - illu heilli - hann fór - sem betur fer - en ekki hún - illu heilli.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 7.11.2010 kl. 08:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband