Tiger - brandari

tigerUng hjón voru í brúðkaupsferð og lágu í rúminu á hótelsvítu, tilbúin að fullkomna hjónaband sitt. Unga eiginkonan segir þá við mann sinn:

"Ég þarf að gera játningu, ég er ekki hrein mey".

Maðurinn svarar, "Það er ekkert mál nú á dögum"

Konan heldur áfram, "Ég hef samt bara verið með einum manni áður"

"Er það... og hver var sá maður?" spyr eiginmaðurinn.

"Tiger Woods", svara konan.

"Tiger Woods!?....golfleikarinn?" spyr maðurinn hissa.

"Einmitt", svarar konan.

funny-golf-pictures-11"Okey", segir maðurinn, "hann er ríkur, frægur og myndarlegur, ég get vel skilið að þú hafir farið í rúmið með honum".

Og svo höfðu ungu hjónin ástríðufullar samfarir. Þegar þau voru búin, stígur eiginmaðurinn fram úr rúminu og gengur að símanum.

"Hvað ertu að gera?", spyr eiginkonan.

"Ég er svangur og ætla að hringja í herbergisþjónustuna"

"Tiger hefði ekki gert það", segir þá konan.

"Nú! Hvað hefði hann gert?

"Hann kæmi aftur upp í rúm og við myndum gera það aftur".

Eiginmaðurinn leggur frá sér símann og þau elskast í annað sinn. Þegar þau eru búin, fer maðurinn framúr aftur.

"Hvað ertu nú að fara að gera?" spyr konan.

"Ég er enn svangur og ætla að athuga hvort ekki sé hægt að fá eitthvað að borða"

"Tiger myndi ekki gera það", segir konan í annað sinn.

"Hvað myndi hann gera nú?, spyr maðurinn eins og áður.

"Hann myndi koma upp í rúm og elskast aftur með mér"

TB_20Maðurinn skellir símtólinu á aftur, fer upp í rúm til eiginkonun sinnar og elskast með henni enn á ný. Þegar þau eru búin er hann úrvinda og alveg búinn á því. Hann skríður að símanum og byrjar að hringja.

Konan spyr, "Ertu að hringja í herbergisþjónustuna?"

"Nei, ég er að hringja í Tiger til að komast að því á hvaða pari þessi fjárans hola er".


mbl.is Woods og Uchitel sögð halda sambandinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Haha góður   Gleðileg jól.

Jóhann Elíasson, 23.12.2009 kl. 14:44

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sömuleiðis, Jóhann

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.12.2009 kl. 14:52

3 Smámynd: Þorsteinn Jónas Skjóldal Haraldsson

Par-exelence snild.Jólahól

Þorsteinn Jónas Skjóldal Haraldsson, 23.12.2009 kl. 15:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband