Sóðaborg fær umhverfisverðlaun

Borgin Groningen í Hollandi er mesta reiðhjólaborg Evrópu, en 50% allrar umferðar þar er á reiðhjólum, auk þess sem almenningssamgöngur eru afar góðar. Mikið er um græn svæði í borginni og snyrtimennskan á götum úti er til fyrirmyndar.

 Groningen er 180 þús. manna borg og þar af eru um 50 þúsund hákólastúdentar. Ég heimsótti borgina fyrir nokkrum dögum síðan og bílaumferðin er eins og í þægilegum smábæ.

Skrítið að Groningen skuli ekki vera á blaði yfir umhverfisvænar borgir á meðan ein sóðalegasta borg Evrópu, Kaupmannahöfn, trjónir á toppnum.

Er þarna spilling og klíkuskapur í gangi? Kæmi svo sem ekki á óvart Errm

Groningen%20Netherlands%20013

Reiðhjólastæði í Groningen. Þessi sjón blasti víða við í miðbænum.


mbl.is Kaupmannahöfn umhverfisvænust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Það er spurninghvortað það spili inn í að við Groningen eru sennilega stærstu gaslindir í Evrópu, eða jafnvel í heiminum.  Það ætti þó ekki að skipta máli því að ekki er gasið brennt þar....

Eiður Ragnarsson, 8.12.2009 kl. 21:38

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þarna virðist gatnkerfi og annað skipulag, mjög svo taka mið af hjólreiðum. Svo er ekki verra að þarna er ekki "mismunandi flatt"... heldur marflatt.

Gunnar Th. Gunnarsson, 9.12.2009 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband