Þeir hafa gert alvarlegri "mistök"

George-Bush-FunnyUpplýsingar bandarísku leyniþjónustunnar um vopnaeign Íraka, reyndust ekki á rökum reistar. Þær upplýsingar voru opinberlega grundvöllurinn að innrásinni í Írak, undir forystu Bandaríkjamanna.

Gríðarlegu fjármagni er kostað til leyniþjónustu og njósnastarfsemi ýmiskonar í landi tækifæranna. Sagt er að hægt sé að lesa dagblað utan úr geimnum frá njósnahnetti. Samt hafa þeir ekki komist nálægt Bin Laden, nema e.t.v. einu sinni skömmu eftir árásirnar 11. sept. 2001.

Það trúa því sennilega fáir að bandarísku leyniþjónustunni hafi í raun orðið á svona herfileg mistök, sem upplýsingarnar um vopnaeign Íraka, ber vitni um. Kaninn ætlaði sér þarna inn og þeir völdu þessa leið.


mbl.is Treystir leyniþjónustunni þrátt fyrir mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Þetta var eingöngu stríð með fjárhagsleg markmið. Það sér hver maður. Hvað ætli USA og amerísk fyrirtæki hafi hagnast á stríðinu hingað til? Frekar ógeðfellt.

Guðmundur St Ragnarsson, 4.12.2009 kl. 23:20

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Heldurðu að Frakkar, Bretinn og Rússinn séu eitthvað skárri?

Gunnar Th. Gunnarsson, 5.12.2009 kl. 01:52

3 Smámynd: Magnús Jónsson

Gunnar: spurningin er ekki hver hagnaðist, heldur hverjum kom það verst, hver tapaði mestu á þessu, það er meira í gangi en flestir nenna að spá í, heimsmyndin er að breytast og ekkert smá, hverjir hertóku 10% af olíalindum heimsins? og hverjum vantar þessa olíu? ver skuldar hverjum og með hverju getur hann helst borgað? ,nei hann getur ekki borgað með fisk og rafmagn á hann ekki heldur í sekkjum, en hann á vopn og mikið meira af þeim en flestir aðrir til samans, svo samningar við hann eru erfiðir svo mildilega sé til orða tekið, og miðjan á n-atlantshafinu hætti skyndilega að skipta máli eins og allir vita ekki satt.

Magnús Jónsson, 6.12.2009 kl. 02:05

4 identicon

Íslendingar högnuðust vel á veru erlends hers hér á landi og sannarlega líkaði konum bæjarins það líka, fyrst voru það Bretar  sem buðu atvinnu svo kaninn sem styrkti okkur verulega peningalega og kom hér upp herstöð,

2 prinsar hér á landi tóku þá ákvörðun að styðja Bush og hans hernaðarbrölt og komu Íslandi á lista yfir viljugar þjóðir sem styddu hernað

Sömu prinsar fundu út að líklega fengi Bobby Fisher ekki réttláta málsmeðferð í Ameríku og hindruðu framsal hans þangað, allir vita hvaða afleiðingar það hefur haft

Eru þetta nokkuð ykkar skuðgoð?

Æja Honkanen (IP-tala skráð) 7.12.2009 kl. 06:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband