Rússíbanar á Reyðarfirði

Í tilefni "Myrkra daga", menningarhátíðar Fjarðabyggðar, spilaði hljómsveitin "Rússíbanar" í sal Grunnskóla Reyðarfjarðar í gærkvöldi (sunnudagskv.)

9829Rússíbanarnir er vel skipuð sveit frábærra hljóðfæraleikara sem allir eiga sér klassískan bakgrunn í tónlistinni. Guðni Franzson, klarinettuleikari og Tatu Kantomaa, harmonikkuleikari, eru áberandi í hljómsveitinni, enda var meirihlutinn á efnisskránni hjá þeim þjóðlög og sígaunatónlist frá Suð-Austur Evrópu. Persónulega hefði ég viljað heyra fjölbreyttari tónlist frá þeim og þá eitthvað ættað vestar úr álfunni.

Tatu Kantomaa er finnskur og hefur búið um nokkurra ára skeið á Íslandi, m.a. á Egilsstöðum. Þar er mikill snillingur á ferð og hljómsveitin flutti tvö lög eftir hann og annað þeirra er skemmtilegt og minnisstætt; "Rauður heimskautahiminn" heitir það. Gaman hefði verið ef hljómsveitinn hefði tekið finnskt þjóðlagarokk, en það er athyglisverð músík.

Ég fór inn á heimasíðu  Tatu  og tók þessar myndir þaðan. Ég læt enskan texta með stóru myndinni fylgja með.

4786_2

Many artists have performed with Rússíbanar, here the tenor Kolbeinn Jón Ketilsson to the right. More photos

The band “Rússíbanar” was formed by the late guitarist Einar Kristján Einarsson in february 1996. Since then have many artists played in the band but the current members being:

  • Guðni Franzson, clarinet
  • Jón Skuggi, bass
  • Kristinn Árnason, guitar
  • Matthías M.D. Hemstock, drums and percussion
  • Tatu Kantomaa, accordion

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón

Sæll Gunnar. Ég er aðdáandi Rússíbana og hef keypt alla diska sem þeir hafa gefið út.  Auk þess á ég tvo diska eftir Kantomaa og eru þeir mjög misjafnir, en báðir góðir á sinn hátt.

Það væri fróðlegt að heyra hljómsveitina spila vestur-Evrópskt endrum og sinnum, en við megum ekki gleyma því að þeir gefa sig út fyrir að spila tónlist austar úr álfunni...

Kveðja langt að austan, Sigurjón

Sigurjón, 16.11.2009 kl. 04:33

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þessi Suð-Austur-Evrópska músík bíður upp á mikla fingraleikfimi fyrir hljóðfæraleikarana, hröð og skemmtileg músík, en sammála þér í því að gaman væri heyra þá spila vestrænt. Jafnvel jass, blús og þjóðlagatónlist í ætt við Jethro Tull..... t.d.

Gunnar Th. Gunnarsson, 16.11.2009 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband