Algjört hrun famundan - Guð blessi Ísland

Þetta vinstra pakk er algjörlega gengið af göflunum. Það er greinilega ekki gera sér grein fyrir hvaða áhrif þessar skattahækkanir munu hafa á hagkerfið. Nógar eru þrengingarnar fyrir, svo þetta bætist ekki ofaná.

Með því að minnka ráðstöfunar tekjur fólks, þá minnkar neyslan sem aftur þýðir uppsagnir í framleiðslu og þjónustugeiranum, auk fleiri gjaldþrota sem þýðir fleiri atvinnulausir sem þýðir enn minni ráðstöfunartekjur almennings.....enn lakari skattheimta.... svört atvinnustarfsemi.... þið hljótið að skilja hvað ég meina.

Flestar vestrænar þjóðir reyna að örva atvinnulífið ásamt því að skera niður í ríkisútgjöldum en þó þannig að það valdi sem minnstu atvinnuleysi.

 


mbl.is 47% skattur á launatekjur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Já nú er það svart.

Helga Kristjánsdóttir, 10.11.2009 kl. 01:17

2 Smámynd: Teitur Haraldsson

Við erum ekki "vestrænar þjóðir".

Við erum núna með komma stjórn sem kann ekkert annað en hækka skatta. Þeir bara sjá bara ekki aðrar lausnir.

Hefurðu prufað að tala við harðan stjórnarsinna? Þeir standa grjót harðir á að það sé ekkert annað hægt að gera. Og það gerir þessa menn óhæfa. Það er hellingur af öðrum leiðum að fara. Vandamálið er að stjórnin er að bera sig saman við 3 heims lönd, og önnur komma lönd.

Teitur Haraldsson, 10.11.2009 kl. 10:14

3 Smámynd: Sigurjón

Sæll Gunnar.

Það virðist vera sem svo að fólk læri ekki af sögunni eða reynzlu annarra.  Það er næsta víst að hækkaðir skattar munu stórauka svarta atvinnustarfsemi og eins og þú segir: Draga úr neyzlu með tilheyrandi afleiðingum.  Það kæmi mér ekki á óvart þó skatttekjur ríkisins myndu í raun lækka, alla vega af tekjuskatti.

Kv. Sigurjón

Sigurjón, 10.11.2009 kl. 10:14

4 Smámynd: Teitur Haraldsson

Það þarf ekki að horfa lengra aftur en hækkun á áfengi núna um árið, það dró úr neyslu svo mikið að innkoman rétt stóð í stað ef mig minnir rétt, eða hvort hún minkaði..?

Teitur Haraldsson, 10.11.2009 kl. 10:30

5 Smámynd: Sigurjón

Jú, mikið rétt Teitur.  Hins vegar er það alveg ljóst að fólk hætti ekkert að drekka.  Það fór bara að brugga...

Sigurjón, 10.11.2009 kl. 12:43

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Reyndar held ég að hækkun áfengis minnki ekki neysluna heldur eykur landabrugg og smygl

Gunnar Th. Gunnarsson, 10.11.2009 kl. 13:04

7 Smámynd: Teitur Haraldsson

 Alvega sammála ykkur. Ég sé það bara í kringum mig.

Og það má klárlega yfirfæra þetta á laun, þau verða líka "brugguð".

Teitur Haraldsson, 10.11.2009 kl. 14:14

8 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Verst finnst mér samanburðartalið um það að Færeyingar og Finnar hafi lent í kreppu eins og Ísland og við gætum lært af þeim en þarna er alveg gríðarleg skekkja því Ísland lenti ekki bara í kreppu heldur í kerfishruni með tilheyrandi stórþjófnaði. Hvar eru peningarnir sem þeir stálu?

Sigurður Haraldsson, 11.11.2009 kl. 00:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband