Mikil er trú Össurar

Össur Skarphéðinsson segir:

„Það hefur ekki farið fram hjá neinum að andstæðingar ESB hafa notað Icesave-deiluna til að halda því fram að Evrópusambandið hafi leynt og ljóst grafið undan Íslendingum. Það er hins vegar ómakleg ásökun og hefur margoft komið fram hjá forystu Evrópusambandsins að hún lítur á Icesave-deiluna sem algjörlega ótengda umsókninni um ESB,"

Og þá trúir hann væntanlega EKKI þingmanninum Lilju Mósesdóttur, sem fékk þær upplýsingar milliliðalaust frá breskum þingmanni á ESB samkomu fyrir nokkrum vikum, að Íslendingar gætu gleymt umsókn í ESB, ef við samþykktum ekki Icesave.

En Össur trúði fulltrúum AGS, þegar þeir sögðu að afgreiðsla lánsins frá þeim væri í engu háð samþykki Íslands fyrir Icesave skuldbindingunni.

Mikil er trú Össurar

ESB vort, þú sem ert í Brussel.
Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki,
verði þinn vilji, svo í Evrópu sem á Íslandi
Gef oss í dag vorar daglegu tilskipanir.
Fyrirgef oss vorar Icesave-skuldir,
svo sem vér og fyrirgefum
vorum skuldunautum.
Og eigi leið þú oss í freistni,
heldur frelsa oss frá sjálfstæði.
Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin
að eilífu.
Amen.

mbl.is Ekki var við ugg í Brussel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband