Línan kemur hvort eð er

Þetta kærustúss stöðvar auðvitað ekki þessar framkvæmdir, en það gerir þær dýrari og það er ekki í þágu þjóðarinnar. Ef náttúruverndarsamtök hafa vald yfir ríkisstjórninni, þá er hætt við að erlendir fjárfestar haldi að sér höndum þar til þessi vinstristjórn er farin frá.

Annars er þetta samtengda mat sem náttúruverndarsinnar vilja, ekkert annað en skrípaleikur. Það hefur lengi legið fyrir að leggja þarf nýjar línur á Reykjanesi, hvort sem þetta álver kemur eða ekki. Eða eins og Árni Sigfússon orðaði það;

"Raflínur á Reykjanesi eru eins og veikur tannþráður"

Og svo koma mótmælendur Errm

protest


mbl.is Kæra ákvörðun um Suðvesturlínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Andspilling

Heimskur hlær af sjálfs síns fyndni, og allt það. En ertu svona ofsatrúaður idíót að vilja taka áhættu á að menga vatnsból hátt 200.000 manns til að siðspilltur pólitíkus sem hangir á bláþræði geti styrkt tannþráðinn sinn. 

Andspilling, 31.10.2009 kl. 11:24

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Nei, ég væri ekki til í að taka áhættuna. Hver heldur þessu fram og í hvaða tilgangi? Trúir þú því að verið sé að taka slíka áhættu?

Gunnar Th. Gunnarsson, 31.10.2009 kl. 12:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband