Egill / Ómar

g_myndir_blogg_ymislegt_mar_ragnarsson_1Þegar Ómar Ragnarsson var fréttamaður á ríkissjónvarpinu, lá hann undir ámæli fyrir að flytja óróðuskenndar fréttir af virkjana og umhverfismálum. Ómar neitaði þessu og benti á að hlufall "neikvæðra" frétta og "jákvæðra" um virkjanamál væri svipað hjá sér.

Fréttamenn eiga ekki að vera álitsgjafar, þeir eiga að flytja fréttir. Í viðskiptum er sagt að til þess að vega upp eina neikvæða frétt af fyrirtæki, þurfi sjö jákvæðar. Þegar Ómar sagði starfi sínu lausu hjá ríkisfjölmiðlinum þá sagðist hann gera það vegna þess að hann gæti ekki lengur flutt hlutlausar fréttir af virkjana og umhverfismálum. Heiðarlegt af Ómari, en þetta kom engum á óvart. Allir vissu um skoðanir Ómars löngu áður en hann viðurkenndi þær opinberlega.

Egill Helgason stjórnar umræðuþætti á ríkissjónvarpinu. Egill fær ágæt laun fyrir það enda þáttur hans vinsæll. En Egill var ekki ráðinn til stofnunarinnar sem álitsgjafi eða áróðursvél fyrir tilteknar skoðanir. Ef hann vill vera í slíku starfi, þá þarf hann að finna sér annan vinnustað.

090311_o_ur_til_egils_helgasonar

Texti við lag Magnúsar Eiríkssonar, "Sölvi Helgason"


mbl.is Björn og Egill elda grátt silfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það þurfa nú ekki allir að vera sammála Birni Bjarnasyni

Guðmundur Fr Þorsteinsson (IP-tala skráð) 21.10.2009 kl. 15:12

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Rétt, það þarf enginn að vera sammála um neitt.... en það er ekki bannað heldur

Gunnar Th. Gunnarsson, 21.10.2009 kl. 15:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband