Í samnburði við hvað?

Ef gera á samanburð á hlutum þá er ekki notast við epli og appelsínur, nema samanburðurinn eigi að leiða í ljós niðurstöðu sem henti fyrirfram ákveðinni skoðun. Á Íslandi er orkuverð til heimila og fyrirtækja með því lægsta sem þekkist og það þrátt fyrir að dreifikerfi raforkunnar sé með því dýrasta sem þekkist.

Tveir höfundar skýrslunnar í þessari frétt, þeir Þorsteinn Siglaugsson og Sigurður Jóhannesson, hafa verið yfirlýstir meðreiðarsveinar Landverndar, sem barist hefur með kjafti og klóm gegn virkjunum á hálendi landsins. Þorsteinn gerði arðsemismatsskýrslu um Kárahnjúkavirkjun fyrir Landvernd en sú skýrsla í heild sinni var beinlínis hlægilega vitlaus, enda finnst hún hvergi í dag.

Þegar borin er saman arðsemi í orkugeiranum í mismunandi löndum, þurfa allar forsendur fyrir samanburðinum að vera augljósar svo almenningur geti lagt mat á niðurstöðurnar. Á blogsíðu Guðjóns I. Guðjónssonar Hansen, sjá HÉR , eru nokkrar ágætar ábendingar:

"Vatnsaflsver kosta mikið í byggingu en lítið í rekstri. Þau ættu því að koma illa út varðandi ROIC eða return on invested capital.

Kjarnorkuver kosta líka mikið í uppsetningu en einnig mikið í rekstri. Lágt ROIC

Kola- og olíuorkuver kosta lítið í uppsetningu en mikið í rekstri. Hátt ROIC

Mér sýnist hlutfall orkuveitnanna skýra allavega að hluta muninn á ROIC. Í Bandaríkjunum er mest kol og olía, þar af leiðandi stærst ROIC. Í Evrópu er meiri kjarnorka og vatnsorka. Á Íslandi er nær einungis vatnsorka og minnst ROIC.

Getur verið að skýrslan sýni einungis að kola-, olíu- og gasorkuver gefi hátt ROIC en að kjarnorka og öll umhverfisvæn orka gefi lágt ROIC?

Það væri ágætt að geta skoðað hvernig íslensk vatnsaflsver eru í samanburði við önnur vatnsaflsver."

 


mbl.is Lítil arðsemi af orkuvinnslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband