Möguleikar á skattlagningu

Skattar eru mörgum vinstrisinnuðum stjórnmálamönnum hugleiknir. Þeir vilja skattleggja helvítis gróðapungana svo þeir geti útdeilt lífsgæðunum af heilagri góðsemi sinni og réttlætiskennd, til almúgans. Sumir trúa að sú aðferðarfræði bæti kjör hinnar vinnandi alþýðu. Margt bendir til að það sé rangt. En útblástursskattur og mengunarkvótar eru heillandi tæki í þeirra augum.

Vísindamenn hafa hagsmuna að gæta og vilja rannsaka allt og því meiri vá sem þeir geta talið stjórnmálamönnum og almenningi trú um að standi fyrir dyrum, því dýpra geta þeir seilst ofan í vasa skattgreiðenda.

Jörðin hefur ekki hlýnað á þessari öld, eins og Ágúst H. Bjarnason hefur oft bent á í bloggpistlum sínum, sjá m.a. HÉR . Hvers vegna segja þá vísindamenn á alþjóðlegu loftlagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn; "Jörðin hlýnar hratt", og "... hætta á skyndilegum veðurfarsbreytingum" ?

Hlýnunin á 20. öldinni er ekki alslæm Cool

global-warming


mbl.is Jörðin hlýnar hratt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú veist hvert stefnir er það ekki?  Það verða skattar, og þeir munu þrýsta á fólk að flytjast í borgir, Gaia verður nýr guð, fólkið má ekki vera á landsbyggðinni, allt verður það friðland undir sameinuðu þjóðunum. 

Það er staðardagskrá 21.

Gullvagninn (IP-tala skráð) 13.3.2009 kl. 09:51

2 Smámynd: Loftslag.is

Því fyrr sem við bregðumst við þessum vanda, því minni áhrif hefur það á skattana

Loftslag.is, 13.3.2009 kl. 11:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband